Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum - Vísir
⚠️ Eldri en 6 mánuðir
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum - Vísir
📅 2026-04-21 06:46:43👁️ 6 lesið
Þetta er meðal þess sem kom fram þegar maðurinn gaf skýrslu við upphaf aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins á hendur honum og þremur öðrum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun.Ákæra héraðssaksóknara er í nokkrum ákæruliðum en Króatinn er ákærður fyrir stórfellt fíkniefna- og vopnalagabrot fyrir að hafa í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni, að því er fram kemur í ákæru, tæplega 1,3 lítra af kannabisblönduðum vökva, um 9,4 kílógrömm af kannabisblönduðu efni og 7,62 grömm af maríjúana í íbúð og bifreið sinni í Reykjavík. Auk þess hafi hann haft útdraganlega kylfu og tvö rafvopn í vörslum sínum.
Við aðalmeðferðina sagði maðurinn að hann hefði ekki verið eigandi efnanna sem fundust í íbúð hans. Hann hefði verið á slæmum stað á þessum tíma og íbúð hans á Hverfisgötu hafi verið opin nánast hverjum sem er sem þangað vildi koma.Hann vissi hver ætti efnin en gæti ekki sagt hver það væri þar sem hann óttaðist viðkomandi.
Þrír símar, peningatalningavél og lofttæmingarvél
Sem áður segir er maðurinn ákærður fyrir að hafa haft fíkniefnin í fórum sínum í sölu- og dreifingarskyni en þau voru alla vega að einhverju leyti í svokölluðum veippennum. 800 slíkir fundust í íbúð hans.Þá spurði sækjandi málsins hvernig kæmi til að hann ætti ýmsa muni, sem haldlagðir höfðu verið vegna málsins. Þar á meðal voru þrír farsímar. Maðurinn gekkst við því að hafa átt tvo þeirra, einn gamlan og annan nýjan, sem hann hefði ekki enn sett upp og væri því enn að nota þann gamla. Þriðja símann kvaðst hann ekkert kannast við.Silja Rán Arnarsdóttir, saksóknarfulltrúi hjá Héraðssaksóknara, sækir málið fyrir hönd ákæruvaldsins.Vísir/Vilhelm Sækjandi spurði þá hvers vegna hann ætti peningatalningavél og hann sagðist hafa verið að geyma hana fyrir annan mann. Loks sagði hann að lofttæmingarvél, sem fannst heima hjá honum, hefði einfaldlega verið eldhúsáhald, enda hefði vélin fundist við hlið svokallaðs sous vide-tækis, sem lögregla hefði ekki tekið fram í gögnum sínum.
Hafi fengið sex til sjö milljónir fyrir eina ferð
Samkvæmt ákæru er maðurinn ákærður fyrir peningaþvætti fyrir að hafa aflað sér ávinnings með sölu og dreifingu á óþekktu magni ávana- og fíkniefna. Hann á að hafa geymt og nýtt fjármunina í eigin þágu og meðal annars keypt úr af gerðinni Orient Bambino, Seiko Prospex, Omega og Rolex Explorer fyrir 2,2 milljónir króna. Lagði lögregla hald á úrin, reiðufé og óútskýrðar tekjur á bankareikningum fyrir samtals um rúmar 22 milljónir króna.Varðandi úrin sagðist maðurinn hafa erft Rolex-úrið af afa sínum og að hann vissi ekki hvert andvirði þess væri. Omega-úrið hefði hann keypt af manni á Facebook fyrir 400 þúsund krónur og hin úrin hefðu kostað innan við hundrað þúsund krónur.Spurður að því hvernig hann hefði í sig og á sagðist hann hafa starfað við öryggisgæslu og fengið fyrir það 200 til 300 þúsund krónur á mánuði. Mestar tekjur fengi hann í gegnum starf sitt í ferðaþjónustu en þær tekjur væru að hluta til greiddar svart, vegna leigu á búnaði fyrir ferðamenn, og að hluta til þjórfé. Varðandi óútskýrðar tekjur á bankareikningum kvaðst hann reglulega fá greitt vegna ferðaþjónustu í gegnum millifærslu og hefði til að mynda fengið sex til sjö milljónir króna fyrir eina langa ferð. Þá útskýrði hann ýmsar minni færslur frá fjölda reikninga með því að um millifærslur frá vinum hans vegna uppgjörs væri að ræða. Hann hefði til að mynda í eitt skipti lagt út 20 þúsund krónur fyrir svokallað flöskuborð fyrir vin sinn. Sækjandi spurði þá hvar væri unnt að kaupa svo ódýrt flöskuborð. Króatinn sagði að það hefði verið á stað sem hefði oft skipt um heiti undanfarið, annað hvort Lux eða Útópíu.
Hinir tveir hefðu ekki vitað af efnunum
Maðurinn er sömuleiðis ákærður ásamt tveimur öðrum, öðrum Króata og Pólverja, fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa reynt að sækja sendingu í júlí 2025 sem innihélt 8,9 kílógrömm af maríjúana ætluðu til sölu- og dreifingar á Íslandi í ágóðaskyni, að sögn saksóknara.Verjendur í málin frá vinstri: Almar Þór Möller, Snorri Sturluson, Unnsteinn Örn Elvarsson og Oddur Valsson.Vísir/Vilhelm Fíkniefnin voru falin í umbúðum af morgunkorni sem komu til landsins með póstsendingu frá Bandaríkjunum en lögregla lagði hald á efnin og fjarlægði þau. Tveir hinna ákærðu sóttu sendinguna og geymdu í sendibifreið sem lagt var við Bátavog í Reykjavík áður en henni var komið fyrir í geymslu að Steinhellu í Hafnarfirði. Einn mannanna er sömuleiðis ákærður fyrir að hafa í vörslu sinni tvær axir sem fundust við húsleit lögreglu.Hann bar fyrir dómi að hann hefði verið í fjárhagskröggum og því hefði hann fallist á að sækja efnin og geyma þau í geymslunni, sem hann hafði á leigu. Hann hefði ekkert komið að skipulagi innflutningsins og hann ætti ekkert í efnunum. Fyrir að sækja efnin hafi hann fengið 1,1 milljón króna frá manni sem hann vissi ekki hver væri.Þá sagði hann að hinir mennirnir tveir hefðu ekki vitað að í kössunum væru fíkniefni. Annar þeirra sé góður vinur hans sem hafi fallist á að hjálpa honum og hinn sé kunningi hans sem hjálpaði honum gegn greiðslu tuttugu þúsund króna. Mennirnir tveir báru um það sama.Annar þeirra sagðist hafa haldið að tilgangurinn með innflutningnum væri að setja á markað sykurlaust morgunkorn fyrir sykursjúka og íþróttamenn.
Sófi fullur af grasi
Fjórði maðurinn, eini Íslendingurinn í hópnum, er ákærður ásamt Króötunum tveimur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa á tímabilinu 18. júní til 4. júlí 2025 haft í vörslum sínum og staðið að innflutningi á 11,2 kílógrömmum af maríjúana ætluð til sölu- og dreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Samkvæmt ákæru voru efnin falin í sófa sem kom til Íslands með póstsendingu frá Bandaríkjunum þann 18. júní 2025. Íslendingurinn er sagður hafa tekið við sendingunni og geymt efnin þar til hinir tveir fóru með sófann og fíkniefnin í geymslu að Selhellu þar sem lögregla lagði síðar hald á efnin.Allir fjórir mennirnir eru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi með því að hafa í félagi við óþekktan aðila sammælst um að fremja refsiverðan verknað um nokkurt skeið til og með 4. júlí 2025. Framkvæmd brotanna er sögð hafa verið liður í starfsemi skipulagðra brotasamtaka.Króatinn bar um það sama varðandi sófann og varðandi morgunkornið. Hinir mennirnir hefðu einfaldlega verið að aðstoða hann og hefðu ekki vitað af fíkniefnunum í sófanum.
Talaði aðallega um Liverpool við manninn en samþykkti að taka við sófanum
Íslendingurinn kom síðastur fyrir dóminn og greindi frá því að hann þekkti hina mennina þrjá, sem hann er ákærður fyrir að hafa stundað skipulagða glæpastarfsemi með, ekki neitt.Maður sem hann kannaðist lauslega við hefði haft samband við hann og beðið hann um að taka við húsgögnum, sófa og borði, sem kæmu frá Bandaríkjunum.Hann hefði kynnst manninum fyrir um þremur árum og í mesta lagi hitt hann þrisvar sinnum í heildina. Samskipti þeirra færu aðallega fram á netinu og í 99 prósent tilvika snerust þau aðeins um knattspyrnuliðið Liverpool. Spurður af sækjanda hvort það væri ekki skrýtið að hann hefði fallist á að taka við sófa fyrir mann sem hann þekkti svo lauslega, sagðist hann ekki hafa talið það á sínum tíma. Maðurinn vissi að hann hefði pláss í bílskúr fyrir sófann og hann hefði aldrei grunað að nokkuð misjafnt væri falið inni í sófanum.Verjandi hans spurði hann þá hvort hann hefði tekið við sófanum í eigin bílskúr og hann sagði að bílskúrinn væri við heimili foreldra hans. Hann hefði augljóslega ekki fallist á að taka við sófanum á heimili foreldra sinna hefði hann vitað að í honum væru fíkniefni.Hann sagði að upphaflega hefði ekki staðið til að hann fengi nokkuð greitt fyrir að taka við sófanum. Svo hefði þó farið að hann greiddi fyrir tollafgreiðslu sófans, 275 þúsund krónur, og þá hefði maðurinn, sem bað hann um að taka við honum, boðist til þess að greiða honum 375 krónur fyrir vikið.
Vildi ekki einu sinni gefa upp hverrar þjóðar maðurinn er
Þá bar sækjandi undir hann tölvupóstsamskipti í hans nafni við Eimskip en hann sagði að þau væru augljóslega fölsuð. Hann hefði ekki átt í neinum slíkum samskiptum og undirskrift í samskiptunum væri allt öðruvísi en sú sem hann notaði venjulega.Þá sagði hann að hann grunaði sterklega hver hefði falsað samskiptin, maðurinn sem fékk hann til að taka við sófanum, en hann gæti ekki fullyrt það. Spurður nánar út í manninn neitaði hann að gefa upp nafn hans eða hvort hann væri Íslendingur eða útlendingur. Hann gekkst þó við því að samskipti við hann hefðu farið fram á ensku.Ætla má að það sé sami maður og Króatinn vildi ekki segja til um af ótta við hann, líkt og segir að framan.
Átti erfitt með að tjá sig um eigin hagi
Loks spurði verjandi Íslendingsins hann um hagi hans eftir handtöku, en hann var handtekinn á vinnustað sínum og látinn róa skömmu síðar.„Ég er bara ónýtur sko, ég er bara að chilla, eins og staðan er í dag, ekki að gera neitt. Mér líður ekki vel,“ sagði hann.Unnsteinn Örn Elvarsson er verjandi Íslendingsins. Hægra megin við hann er Oddur Valsson lögmaður.Vísir/Vilhelm Verjandi hans spurði hann þá hvort hann hefði ekki menntað sig í því fagi sem hann starfaði við og við það virtist maðurinn brotna niður og ekki geta tjáð sig frekar.Verjandi, sækjandi og dómari urðu þá sammála um að óþarft væri að halda áfram og við svo búið var öllum skýrslutökum dagsins lokið. Fyrirhugað er að aðalmeðferð ljúki á morgun og því má búast við dómi innan fjögurra vikna og eins dags.
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Senn líður að hrekkjavöku sem vinnur sér sífellt sterkari sess sem tyllidagur hér á landi. Grasker og annar varningur tengdur hátíðinni er áberandi í ...
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins úr Suðurkjördæmi, segist deila áhyggjum íbúa á svæðinu vegna gjaldtöku á ferðamannastöðum. Staðrey...
Össur Skarphéðisson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra ræddi málefni Viðreisnar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sagði h...
„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrúna núna og fara í að styrkur á hvern fluglegg verði níu þúsund krónur,“ segir Eyjólfur í samtali við...
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal Tjaldbúðir hafa risið í Lissabon og Porto undanfarnar vikur vegna húsnæðisverðs. Mótmælin eru hlut...
Innviðaráðherra segir boðaðar breytingar á niðurgreiðslu Loftbrúar í endurskoðun.„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9000 ...
Árásin átti sér stað á föstudag í Yvelines-héraði sem er rétt vestan við París í Frakklandi. Hinn grunaði á að hafa ekið um bæinn Trappes og skotið út...
A 15-month-old boy died at a home in Los Abrigos this morning, Sunday 25th October, despite efforts by emergency medical teams to save him.Guardia Civ...
Island Hopping in Greece and Where to Base Yourself pairs Mykonos and Paros for a seven-night Cyclades holiday. Mykonos delivers golden beaches, fine ...
Landsnet lætur gera ytri úttekt á slysi sem varð þann 30. september við tengivirki í Borgarfirði þegar ung kona varð fyrir rafstraumi. Slysið er til r...
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir lægðina ná mestri dýpt á seinnipart fimmtudags í stað föstudagsmorguns eins og var reiknað var með. Hann seg...
Mikið óveður hefur gengið yfir Suður-Noreg í dag en stormurinn Boelo hefur valdið mikilli rigningu og hvassviðri.Þúsundir heimila eru án rafmagns, tré...
Arnar Þór Jónsson sakar RÚV um að hafa ekki upplýst áhorfendur og hlustendur um ástandið í Frakklandi og áhyggjur þýskra bankamanna af framtíð evrunna...
Vindorkugarðar áformaðir víða um land Fyrsta vindorkuverið á Íslandi hefur verið gangsett og fleiri eru áformuð. Yfir fjörutíu hugmyndir eru um v...
Kjörsókn hefur verið mikil í Serbíu en þar fara þingkosningar fram í dag.Fyrrum forseti landsins, Aleksandar Vucic, rauf þing í september og boðaði ti...
Five people have been injured when their sailing yacht ran aground near Órzola harbour in northern Lanzarote this morning, Sunday, leaving four of the...
Í stefnunni er því haldið fram að Anthropic, sem á gervigreindarmállíkanið Claude, hafi brotið gegn höfundarrétti 274 laga Presley. Þar á meðal eru he...
Öryggis- og varnarmál verða í brennidepli á Norðurlandaráðsþingi í vikunni. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem sækir þingið segir áherslu verða lagða ...
The International Weightlifting Federation becomes the first Olympic federation to choose Russia to host a world championships since its invasion of U...
Dómur Landsréttar hefur sætt harðri gagnrýni og í undirskriftasöfnun kalla þúsundir eftir því að óháð úttekt verði gerð á meðferð kynferðisbrotamála e...
Gefið var úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis í vikunni þar sem samtals voru úthlutaðar 18 milljónir króna til þrettán verkefna. Styrkupphæðirnar námu frá...
12% meiri lax veiddist á stöng í sumar en á meðalári. Heildarfjöldi stangveiddra laxa var um 46.300 fiskar. Það er 35% meiri veiði en í fyrra.Þetta ke...
„Við bara erum bara klárir í startholunum og bíðum þangað til við fáum nægilegt frost,“ Einar Bjarnason rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæð...
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju Fréttin25. október 2026Eldur Smári, Innlent, ÍþróttirLeave a Comment Emin Kadri. Eldur Smári...
Dómsmálaráðherra segir skiljanlegt að skoðanir séu skiptar á sameiningum lögregluembætta. Alls hafa tuttugu og ein umsögn borist í samráðsgátt um frum...
Leikarinn og leikstjórinn Taika Waititi hefur opinberað eina reglu sem hann og eiginkona hans, söngkonan Rita Ora fylgja í sambandi sínu, í þeim tilga...
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri Fréttin25. október 2026InnlendarLeave a Comment Miklar óeirðir brutust út í...
„Grundvöllurinn er traust og traust er mjög flókið fyrirbrigði sem þarf að vera til staðar þegar menn eru að sinna svona starfi og þá er líka mikilvæg...
Þetta hefur BBC eftir ísraelska hernum en þingkosningar fara fram í Ísrael á þriðjudaginn. Lokunin nái sérstaklega til verkamanna „um alla Júdeu, Sama...
Ðuro Macut forsætisráðherra óskaði eftir því að Aleksandar Vucic, forseti og flokksbróðir hans, ryfi þing og boðaði til kosninga þann 9. september síð...
Þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi telur að innviðaráðherra þurfi að endurskoða boðaðar breytingar á niðurgreiðslu vegna Loftbrúar. Sjö þú...
Þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi telur að innviðaráðherra þurfi að endurskoða boðaðar breytingar á niðurgreiðslu vegna Loftbrúar. Sjö þú...
Ef Alþingi samþykkir bókun 35 á næstu vikum er mál ESA gegn okkur orðið ansi veikt. Pawel Bartoszek, formaður þingflokks Viðreisnar og fyrrverandi for...
Brasilíumenn ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga. Val kjósenda stendur á milli sitjandi forseta og frambjóðanda hægrimanna sem ...
Málverkið af danska kónginum Í Friðriksborgarhöllinni á Norður – Sjálandi má sjá málverk af dönskum þjóðhöfðingjum, langt aftur í aldir. Fyrst...
Ísraelsher ætlar að loka öllum landamærastöðvum á Vesturbakkanum á þriðjudag þegar kosningar eru í Ísrael.Tvö þúsund Palestínumenn voru hraktir frá he...
Ráðherrann kynnti fyrir nokkrum vikum nýjar breytingar á umdæmum lögreglunnar þar sem fækka á þeim úr sjö í þrjú. Áformin hafa sætt töluverðri gagnrýn...
Lögregla var kölluð að Hagkaup í Skeifunni um sjöleytið í gærkvöld. 18 ára karlmaður óskaði eftir aðstoð eftir að hópur manna réðst á hann með barsmíð...
Vetrartími tók gildi í Evrópu í nótt og klukkan var þá færð klukkustund aftur.Tímamunurinn milli Íslands og vesturhluta Evrópu og Skandinavíu er nú ei...
Orðið á götunni er að vert sé að staldra við og skoða vandlega þau áform sem nú eru uppi um rekstur Litla spítalans, sem boðað er að hefji senn starfs...
Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að tilkynning barst um líkamsárás í hverfi 108 og sé málið í rannsókn. Um hóp manna hafi verið a...
Um þetta leyti á árinu 1995 var vinna við innleiðingu á einu neyðarsímanúmeri fyrir allt landið langt á veg komið. Fram að því hringdi fólk í símanúme...