Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins um málið kemur fram að um sé að ræða fyrstu skýrslu sem gerð er um eignir í eigu krúnunnar í tuttugu ár. Skýrslan leiði þó ekki beinlínis í ljós að prinsinn hafi sýnt af sér saknæma háttsemi.
Þar komi ekki fram hversu mikið hann fékk í leigutekjur, en heimildarmenn breska ríkisútvarpsins innan hallarinnar gefa í skyn að hann hafi leigt eignina til starfsfólks eða starfsfólks á eftirlaunum og að upphæðin hafi aðeins dugað til að standa straum af rekstrarkostnaði. Hver sem upphæðin var, rann hún til Andrew frekar en til krúnunnar, sem hefði greitt hagnað sinn aftur til ríkissjóðs.
BBC hefur eftir talsmanni krúnunnar að hún fagni skýrslunni, sem mun liggja til grundvallar rannsókn fjárlaganefndar neðri deildar breska þingsins á eignum konungsfjölskyldunnar. Rannsóknin er tilkomin vegna þess að upp komst í október að Andrew hafi einungis greitt táknræna leigu fyrir Royal Lodge, setrið í Windsor sem Karl rak hann að lokum úr.