Þórarinn Hjartarson, þáttastjórnandi hlaðvarpsins Ein Pæling, segir það alvarlegt merki um þróun samfélagsins að eftirlitsmenn Strætó telji sig þurfa að klæðast stunguvestum við störf sín.
Þórarinn ræddi málið í nýlegum þætti og gagnrýndi harðlega að slík þróun væri afgreidd sem eðlileg öryggisráðstöfun.
„Nei, það er ekkert í gangi, sko. Nei, nei, þetta er hérna… Þetta er bara eðlilegt að það þurfi núna að banna unglingum að fara í sundlaugaklefa, það er að segja útiklefa. Það er bara eðlilegt,“ sagði Þórarinn.
Hann vísaði þar til umræðu um öryggisaðstæður í útiklefum sundlauga áður en hann beindi sjónum sínum að eftirliti í almenningssamgöngum.
Spyr hvers vegna þörf sé á eftirlitsmönnum
Þórarinn sagði að byrja þyrfti á þeirri grundvallarspurningu hvers vegna sérstakir eftirlitsmenn væru yfirhöfuð orðnir nauðsynlegir í strætisvögnum.
„Í fyrsta lagi, sko. Það eru eftirlitsaðilar í strætónum. Byrjum bara þar. Af hverju eru eftirlitsaðilar í strætóunum? Þú veist, hvernig gat það komið upp úr hattinum að eftirlitsaðilar þyrftu að vera í strætó? Og ekki nóg með það. Núna þurfa þeir að klæðast stunguvestum.“
„Hættu að segja mér að ég sé ekki að sjá það sem ég er að sjá“
Eftirlitsmenn Strætó hafa það hlutverk að fara á milli vagna og kanna hvort farþegar hafi greitt fargjald. Þeir hafa einnig heimild til að leggja svokallað fargjaldaálag á þá sem geta ekki sýnt fram á greiðslu.
Að sögn Jóhannesar Svavars Rúnarssonar, forstjóra Strætó, voru vestin keypt eftir að starfsmenn óskuðu eftir því.
Athygli hafði verið vakin á klæðaburðinum í Facebook hópnum Ísland þvert á flokka þar sem birt var mynd af starfsmanni í slíku vesti. Þar var því haldið fram að hótanir í garð starfsmanna hefðu aukist verulega og að margir gerendanna væru arabískir karlmenn.
„Þeir óskuðu eftir því að fá að vera í þessu og við því var orðið,“ sagði Jóhannes um vestin.
Segir ekki hægt að afgreiða þróunina sem eðlilega
Samkvæmt Jóhannesi hafa engin alvarleg atvik komið upp gagnvart eftirlitsmönnunum, hvorki áður en vestin voru keypt né eftir. Vestin séu fyrst og fremst notuð í öryggisskyni.
Þórarinn hafnaði því hins vegar að hægt væri að tala um þróunina eins og hún væri eðlileg eða ómerkileg.
„Víst hafa komið upp atvik í strætó. Hvað eruð þið að tala um?“
Hann sagði fólk hafa séð myndbönd af alvarlegu ofbeldi í almenningssamgöngum og að ekki væri hægt að láta eins og ekkert hefði breyst.
„Hættu að segja mér að ég sé ekki að sjá það sem ég er að sjá. Hættu að segja mér að ég hafi ekki séð myndböndin sem hafa meðal annars verið af stunguárásum í strætó og hættu að segja mér að það sé eðlilegt að verða við því að eftirlitsaðilar séu í stunguvestum, hvaða kjaftæði er þetta?“
Ein Pæling 22. júlí – Starfsmenn strætó í stunguvestum pic.twitter.com/FZf5BkWb3Z
— Thorarinn Hjartarson (@TotiHjartar) July 22, 2026