Kanada hefur dregið sig út úr sameiginlegri opnunarhátíð fyrir opnun Gordie Howe-brúarinnar sem tengir Ontario-fylki í Kanada við Michigan-ríki í Bandaríkjunum.
Þessi ákvörðun er tekin í framhaldi af tilkynningum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta fyrr í vikunni um aukna tolla á innflutning frá Kanada.
Kanadísk stjórnvöld hafa ákveðið að í staðinn verði Kanadamenn með sína eigin athöfn á morgun, þremur dögum áður en áformað er að hleypa umferð á brúna. Óvíst er hvort Bandaríkin haldi sína eigin athöfn.
Nefnd eftir einum besta hokkíleikmanni sögunnar
Trump hótaði að koma í veg fyrir opnun brúarinnar fyrr á árinu. Mark Carney forsætisráðherra Kanada tilkynnti í júní að brúin yrði opnuð en því var frestað um óákveðinn tíma vegna tæknilegra örðugleika í Bandaríkjunum.
Opnun brúarinnar var endanlega staðfest fyrr í mánuðinum. Hún er nefnd eftir Kanadamanninum Geordie Howe sem er af mörgum talinn einn besti hokkíleikmaður sögunnar. Hann lék stóran hluta ferils síns fyrir Detroit Red Wings í NHL-deildinni.
Kanada fjármagnaði smíðina að fullu
Brúin hefur verið í smíðum síðan 2018 og framkvæmdin kostar nærri 4,4 milljarða Bandaríkjadala, eða sem samsvarar um 550 milljörðum króna. Kanada fjármagnaði framkvæmdina að fullu í samræmi við samkomulag ríkjanna sem kveður á um að ríkið fái kostnaðinn endurgreiddan með vegtollum.
Stjórn Trumps hefur sóst eftir því að gera breytingar á samkomulaginu. Í febrúar fór Trump fram á það að Kanada léti Bandaríkjunum eftir helmingseignarhlut í brúnni.