Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, staðfestir í samtali við Vísi að rannsókn sé hætt en gat ekki veitt frekari upplýsingar.
Eyjafréttir greina fyrst frá og segja ákvörðunina hafa verið tekna í dag eftir að lögregla hafi farið yfir endanlega krufningarskýrslu sem henni hafi borist fyrir helgi. Niðurstöður hafi verið að ekki sé grundvöllur til að halda rannsókn áfram. Þá segir að sakborningar og verjendur í málinu hafi verið upplýstir um ákvörðunina og þeim send bréf þess efnis.
Lögregla hóf rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri þann 28.janúar á þessu ári og voru tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins Hraunbúða handteknir vegna málsins. Konan hafði þegið líknandi meðferð á hjúkrunarheimilinu en rannsókn lögreglu hafðist eftir tilkynningu annars starfsmannsins.
Lögreglan á Suðurlandi krafðist áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir starfsmönnunum en bæði Héraðsdómur Suðurlands og Landsréttur höfnuðu gæsluvarðhaldskröfunni. Rannsókn málsins hélt áfram þrátt fyrir úrskurð Landsréttar.
Rannsókn var í höndum lögreglustjórans á Suðurlandi en ekki lögreglunnar í Vestmannaeyjum vegna fjölskyldutengsla starfsmanns þar við málsaðila.