Hæsti hiti sem mælst hefur í dag er 28,0 gráður á Seyðisfirði og 27,9 á mæli í Borgarfirði eystri.
Teitur Arason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir líklegt að hitinn verði svipaður í tvo til þrjá klukkutíma fram yfir hádegið en býst ekki við að hitinn nái meiri hæðum. „Mér finnst líklegt að hann hafi náð hámarki nú þegar.“
Eystra nýtur fólk góða veðursins. Hitamælirinn í bíl Dýra Jónssonar, hóteleiganda á Seyðisfirði, sýndi 30 gráður rétt fyrir fréttir. „Svo heyrði ég af því að hjá fólki sem ég er að vinna með voru 32 gráður á mælinum. Það er ansi heitt.“
Þrjú skemmtiferðaskip eru í höfn. Dýri segir að líklega hafi íbúafjöldinn þrefaldast í dag. Auk erlendra ferðamanna er fjöldi Íslendinga kominn í bæinn.
Lítilla breytinga er að vænta í veðri næstu daga segir Teitur veðurfræðingur.
„Það verður hlýtt áfram á austanverðu landinu en skýjað og einhver væta vestan megin. Ég vil þó minnast á að við vesturströndina gæti birt upp um tíma á föstudaginn, þar með talið á höfuðborgarsvæðinu, en það er bara dagpartur. Í grófum dráttum verður áfram skýjað á vestanverðu landinu um helgina og í næstu viku.
Rætt var við Teit og Dýra í hádegisfréttum.