Veðurstofa Ísland hefur gefið út gular viðvaranir vegna hvassviðris á Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og á miðhálendinu.
Gul viðvörðun tók gildi á Breiðafirði klukkan 5 í morgun og klukkan 6 á Vestfjörðum. Klukkan 8 tekur hún gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra og klukkan 9 á miðhálendinu. Spáð er sunnan 13-20 m/s á þessum svæðum þar sem vindhviður geta farið í upp í 30 m/s við fjöll. Vindur getur verið varasamur fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi.
Í dag er spáð suðvestlægi átt á landinu, víða 13-20 m/s norðvestan til, annars 8-15 m/s. Það dregur úr vindi með kvöldinu. Bjart verður með köflum fyrir austan en annars verður rigning eða súld. Hitinn verður á bilinu 11 til 26 stig og verður hlýjast á Austurlandi.
Á morgun verða vestan og suðvestan 8-15 m/s. Það verður skýjað á vestanverðu landinu og sums staðar súld en víða léttskýjað eystra.
