Guðný heimsmeistari í bekkpressu - MBL.IS

Guðný heimsmeistari í bekkpressu - MBL.IS

Guðný heimsmeistari í bekkpressu - MBL.IS

Guðný Ásta Snorradóttir varð Evrópumeistari í bekkpressu með búnaði á EM á Möltu í fyrra en í augum íslenskra kraftlyftingakvenna er Evrópa aldrei nóg svo Guðný mætti í föruneyti tíu gallharðra keppenda frá Íslandi á heimsmeistaramótið í bekkpressu í Varsjá í Póllandi, sem rann skeið sitt á enda í dag, og varð á föstudaginn heimsmeistari í bekkpressu með búnaði auk þess að setja tvö Íslandsmet í klassískri bekkpressu daginn áður.

„Í framhaldi af mótinu á Möltu setti ég ákveðinn fókus á að mæta á þetta mót,“ segir Guðný í samtali við mbl.is um glæsilegan árangur sinn í +84 kg flokki master 2 sem er aldurshópurinn 50 til 59 ára.

Guðný tók opnunarlyftu sína, þá fyrstu af þremur, í 135 kg, sigurþyngd hennar á Möltu í fyrra, og runnu þau upp sem hendi væri veifað. Raunar tryggði þessi lyfta henni heimsmeistaratitilinn en þar sem til siðs er að klára allar þrjár lyfturnar voru 142,5 kg sett á stöngina fyrir næstu atrennu sem var hennar besti árangur fram til þessa móts.

Toppkonur í +84 með búnaði, Guðný með gull, í öðru …
Toppkonur í +84 með búnaði, Guðný með gull, í öðru sæti Angela Lauder frá Bretlandi og Svíinn Åsa Pennebratt í þriðja. Hægra megin á myndinni stendur Sigurjón Pétursson, forseti Alþjóðakraftlyftingasambandsins. Ljósmynd/Kraftlyftingasamband Íslands

Ógild en átti meira inni

„Hún fór upp en var dæmd ógild, kom niðurhreyfing á leiðinni upp sem má ekki. En ég vissi alveg að ég ætti meira inni en fyrir þessu og þrátt fyrir að lyftan væri dæmd ógild hækkaði ég í 145 og tók það í þriðju lyftu,“ segir Guðný frá en þær voru fimm sem öttu kappi í hennar flokki og var Íslendingurinn öruggur með sigurinn, keppinautur hennar í öðru sæti lyfti mest 120 kg.

„En maður er aldrei öruggur, ég vissi náttúrulega ekkert hvað hún ætlaði að gera en svo munaði töluvert miklu hjá okkur,“ segir heimsmeistarinn nýbakaði sem segir það mikinn heiður að fá að vera í landsliði Íslands og keppa fyrir hönd fósturjarðarinnar.

Frá vinstri: Anton Haukur Þórlindsson, heimsmeistari í bekkpressu með búnaði …
Frá vinstri: Anton Haukur Þórlindsson, heimsmeistari í bekkpressu með búnaði í 83 kg drengjaflokki, Þórunn Brynja Jónasdóttir, keppandi, þjálfari og dómari á mótinu, og Hjálmar Andrésson þjálfari. Ljósmynd/Aðsend

„Mér finnst mjög gaman að keppa, koma á staðinn og hitta fólk sem hefur allt áhuga á því sama. Ég held að ég fari rétt með að yngsti keppandinn á þessu móti hafi verið fimmtán ára og sú elsta níræð,“ segir Guðný sem metur bekkpressuna, guðsgreinina sem Kári Elíson kraftlyftingamaður skírði svo, mest allra keppnisgreina en keppir þó hiklaust í þrílyftu, það er að segja hinum þremur greinum kraftlyftinga, bekkpressu, hnébeygju og réttstöðulyftu.

Tvö Íslandsmet „á kjötinu“

Guðný lét sér bekkpressu með búnaði – sem er svokallaður bekkpressusloppur, níðþröng flík sem gerir iðkandanum kleift að lyfta meiri þyngd en kemur þó á keppnisgrundvelli eins út fyrir alla í greininni – ekki nægja heldur keppti líka í klassískri bekkpressu, „á kjötinu“, á fimmtudaginn þar sem vöðvaaflið eitt hefur stöngina upp á gamla mátann.

Guðný klár í slaginn og Hjálmar þjálfari stendur henni þétt …
Guðný klár í slaginn og Hjálmar þjálfari stendur henni þétt að baki eins og góðir þjálfarar gera. Ljósmynd/White Lights Media

Þar keppti hún í opnum flokki og náði þar öllum sínum markmiðum þrátt fyrir að fara ekki með sigur af hólmi í opna flokknum. Allar þrjár lyfturnar voru gildar og setti Guðný tvö Íslandsmet, í aldursflokkunum master 1 og master 2, það er 40 til 49 ára og sínum eigin flokki, 50 til 59 ára.

Hún er krafin skýringa á metinu í yngri flokknum.

„Ég er 53 ára og keppi í master 2 en af því að ég lyfti þyngra en í aldursflokknum fyrir neðan tekur Íslandsmetið þar yfir,“ útskýrir hún en í klassískum bekk lyfti hún fyrst 117,5 kg, þá 120, sem er Íslandsmet í M1 og M2, og að lokum 122,5 kg sem er annað Íslandsmet í sömu aldursflokkum.

Guðný á bekknum og stangarmennirnir til reiðu fari eitthvað úrskeiðis. …
Guðný á bekknum og stangarmennirnir til reiðu fari eitthvað úrskeiðis. Fátt gerði það hjá Guðnýju á þessu móti, ein ógild lyfta vegna tæknivillu en heimsmeistaratitillinn þá þegar í höfn. Ljósmynd/Aðsend

Margar til kvaddar – fáar útvaldar

„Við erum mjög fáar íslenskar konur sem höfum lyft yfir 120 kílóum á móti og að brjóta þann múr var geggjað fyrir mig,“ segir Guðný sem er á leið á EM í bekkpressu í ágúst þar sem hún stefnir á að keppa aftur í opnum flokki en til þess þarf hún að hafa náð lágmörkunum til að keppa í þeim flokki og þeim hefur hún þegar náð þrátt fyrir að vera vel yfir meðalaldri í opnum flokki.

Í aldursflokknum hyggst hún keppa í búnaði hins vegar.

„Flestar sem keppna í opnum flokki í klassískri bekkpressu eru á aldrinum 24 til 39 ára, það er bilið í opna flokknum,“ segir Guðný sem æfir hjá Kraftlyftingafélagi Reykjavíkur undir vökulu auga Ingimundar Björgvinssonar þjálfara sem vakti verðskuldaða athygli sem dyravörður á Gauki á Stöng í byrjun aldarinnar undir nafninu Ingimundur gamli – eftir landnámsmanninum Ingimundi gamla Þorsteinssyni í Vatnsdal í Húnaþingi, sjálfur er Ingimundur kornungur.

„Svo stefni ég bara á fleiri mót hérna heima, Menningarbikarinn þar á meðal, þar er keppt utanhúss, og svo er þrílyftumót í haust,“ segir heimsmeistarinn. Nóg á efnisskránni.

Ekki er allt gull sem glóir en þessi gullmedalía frá …
Ekki er allt gull sem glóir en þessi gullmedalía frá HM í Póllandi glóir sem aldrei fyrr. Ljósmynd/Aðsend

Hvernig lá leiðin út í kraftlyftingar?

„Ég hef alltaf verið að æfa,“ svarar Guðný, „en hérna á árum áður var maður ekki að lyfta þungu, var meira í pallaleikfimi og með létt lóð, en um leið og maður fór að lyfta svona alvörustöngum fór þetta að verða virkilega gaman og eftir það var ekki aftur snúið,“ segir Guðný Ásta Snorradóttir, nýbakaður heimsmeistari í bekkpressu með búnaði, sem er komin heim frá Póllandi með gull í farteskinu og ekkert minna en hrikalega góðar tölur af mótinu, með sem án búnaðar.

Íslendingur, Breti og Svíi sameinast í myndatöku á verðlaunapalli að …
Íslendingur, Breti og Svíi sameinast í myndatöku á verðlaunapalli að átökum loknum. Ljósmynd/Aðsend


Upprunaleg slóð:
https://www.mbl.is/sport/frettir/2026/05/31/gudny_heimsmeistari_i_bekkpressu/

📰 Aðrar fréttir

Hvað veistu um… Nylon? - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 1
Hvað veistu um… Nylon? - Vísir
Nylon starfaði einnig um tíma í Bretlandi, en sveitin hætti svo að koma fram undir merkjum Nylon árið 2008. Liðsmenn komu þó aftur saman á Menningarnó...
Búast við aukinni sölu rafbíla á næstu dögum
📅 19.10.2026 👁️ 1
Búast við aukinni sölu rafbíla á næstu dögum
Styrkir til kaupa á rafknúnum fólksbílum lækka um 100 þúsund krónur um næstu mánaðamót, úr 500 í 400 þúsund, samkvæmt reglugerð sem umhverfisráðherra ...
Komu til Íslands til að fagna gullbrúðkaupi – Ferðin breyttist í martröð
📅 19.10.2026 👁️ 2
Komu til Íslands til að fagna gullbrúðkaupi – Ferðin breyttist í martröð
Tom Profitt og eiginkona hans komu hingað til lands í lok september til að fagna 50 ára brúðkaupsafmæli sínu. Dvöldu þau á landinu í viku, gengu víða ...
Lára hefur greinst þrisvar með krabbamein: „Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót“
📅 19.10.2026 👁️ 2
Lára hefur greinst þrisvar með krabbamein: „Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót“
Lára Árnadóttir hefur þrisvar sinnum greinst með krabbamein. Hún er þakklát fyrir lífið og fyrir að hafa þekkt sinn líkama og hlustað á einkennin.
Skrásetja öll hjartastuðtæki landsins
📅 19.10.2026 👁️ 1
Skrásetja öll hjartastuðtæki landsins
Um 3000 hjartastuðtæki eru víðs vegar um landið. Heilbrigðisráðuneytið hefur hrundið af stað verkefni að skrásetja öll tækin. Þorbjörg Katrín Davíðsdó...
Sahara Ray látin - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 1
Sahara Ray látin - Vísir
TMZ greinir frá þessu. Aðstandendur Ray segja hana hafa fallið frá í gær. Hún hafi verið í faðmi fjölskyldu. Dánarorsök liggur ekki fyrir. Ray varð fr...
Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
📅 19.10.2026 👁️ 2
Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
Rannveig Rist lét af störfum sem forstjóri álvers Rio Tinto í Straumsvík í maí en hún hafði þá gegnt starfinu í um 30 ár. Á ársfundi Samtaka atvinnulí...
Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á tún­fiski - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 1
Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á tún­fiski - Vísir
Fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir var kynnir á viðburðinum og sagði gestum frá rúmlega 140 kílóa bláuggatúnfisknum sem var fluttur sérstaklega til ...
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
Hrefna Dagbjört Arnardóttir, eigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð, þar sem bæði er stunduð ferðaþjónustustarfsemi og skógrækt, höfðaði málið á...
Eldur í potti á Norðurbakka
📅 19.10.2026 👁️ 2
Eldur í potti á Norðurbakka
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er í útkalli vegna elds á Norðurbakka í Hafnarfirði. Þar reyndist eldur hafa kviknað í potti. Vel gekk að slökkva eldi...
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi að slökkviliðinu hafi borist útkallið á sjöunda tímanum en...
Richard Riehle látinn - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 1
Richard Riehle látinn - Vísir
Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ greinir frá andláti Riehle og segir hann hafa látist á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum. Riehle sló gjörsamle...
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
📅 19.10.2026 👁️ 2
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
Hörð viðbrögð við sýknudómi í nauðgunarmáli fyrir Landsrétti benda til þess að hann sé á skjön við almennan skilning á samþykki. Sérfræðingur segir Hæ...
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
📅 19.10.2026 👁️ 2
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
Serhii Beskrestnov says there has not been enough time to warn people about incoming missile attacks. The White House said there had been no changes t...
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
📅 19.10.2026 👁️ 2
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
Hægt verður að nýta allar sex verslanir Ikea í Danmörku sem neyðarskýli eða bráðabirgðasjúkrahús komi til hamfara, árása á mikilvæga innviði eða flóða...
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
📅 19.10.2026 👁️ 3
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
Matthías Freyr Matthíasson, 46 ára, greindist með ristilkrabbamein í apríl síðastliðnum eftir að hafa glímt við mikla kviðverki um nokkurt skeið. Sköm...
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
Um helgina var greint frá því að Ung vinstri græn (UVG) hefði kosið sér nýja forystu.  Hinn 26 ára Ari Orrason var kjörinn formaður en í þingkosningum...
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
📅 19.10.2026 👁️ 2
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
Íslenskur skiptinemi sem býr í París í Frakklandi fann lítið fyrir mótmælunum sem hafa verið í borginni, þar til um helgina. Mótmælin hafa stigmagnast...
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
Í umfjöllun Guardian kemur fram að ríkisstjórn Frakklands hafi fundað í dag vegna ástandsins í landinu. Líkt og fram hefur komið spruttu óeirðirnar up...
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
📅 19.10.2026 👁️ 2
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft uppi á öllum fimm sem eru grunaðir um stórfellda hópárás í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum. Árásin átti sér stað í byr...
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
📅 19.10.2026 👁️ 3
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
A 16-year-old boy has suffered a broken arm and multiple injuries after allegedly being attacked by a group of five young people in Vecindario, Gran C...
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
Þetta segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, í samtali við fréttastofu. Tilefnið er tilkynning lögreglu í síðustu viku þar se...
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
📅 19.10.2026 👁️ 3
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
Gísli Freyr Valdórsson, umsjónarmaður Þjóðmála, telur að það sé skrítin stemning í þingflokki Viðreisnar og að það verði gerðar breytingar á forystu f...
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir Yfirvöld í Danmörku hefja rann­sókn eftir að frétta­ljós­mynd­arar lýsa árásum af hálfu lög­regl­unnar. Ljós­my...
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. ...
Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. ...
Wolt-sendlar íhuga næstu skref í kjarabaráttu
📅 19.10.2026 👁️ 3
Wolt-sendlar íhuga næstu skref í kjarabaráttu
Um sex hundruð sendlar starfa hjá Wolt hér á landi.Hópur þeirra lagði niður störf um miðjan september þegar laun þeirra voru lækkuð um allt að 40 prós...
Ísaksskóli eignast Ísaksskóla - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ísaksskóli eignast Ísaksskóla - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að kaupin byggi á endurkauparétti sem samið var um við Reykjavíkurborg árið 2011.  Sk...
Játaði innflutning á kratom og sagðist fá sér það eins og kaffi
📅 19.10.2026 👁️ 3
Játaði innflutning á kratom og sagðist fá sér það eins og kaffi
Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt mann um þrítugt til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir innflutning á fíkniefninu kratom. Dómari...
Ex-OpenAI worker accused of planting device had Saudi support says court filing
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ex-OpenAI worker accused of planting device had Saudi support says court filing
The Saudi government did not immediately respond to BBC requests for comment.
Tvö bandarísk herskip í Jökulfjörðum
📅 19.10.2026 👁️ 3
Tvö bandarísk herskip í Jökulfjörðum
Tvö herskip bandaríska sjóhersins eru í Jökulfjörðum: skipin Hos Red Rock og Hos Red Dawn.Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafa þau leyfi s...
Inga um ótta kennara: „Staðan er graf­alvar­leg“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Inga um ótta kennara: „Staðan er graf­alvar­leg“ - Vísir
Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, á Alþingi í dag. Snorri vísaði til fréttaflutnings síðustu vik...
Katrín Oddsdóttir: Þetta er eins og ef einhver heimilaði kjúklingabú í garðinum þínum án þess að spyrja þig
📅 19.10.2026 👁️ 4
Katrín Oddsdóttir: Þetta er eins og ef einhver heimilaði kjúklingabú í garðinum þínum án þess að spyrja þig
Lykilstarfsmenn fyrirtækja og samtaka í sjávarútvegi fara þaðan beint til starfa í ráðuneyti og stofnunum sem koma að lagasetningu og leyfisveitingum....
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn
📅 19.10.2026 👁️ 4
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn Kosn­inga­bar­áttan fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber er orðin jafn­ari en...
Jarð­skjálftinn 5,2 að stærð - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Jarð­skjálftinn 5,2 að stærð - Vísir
Þetta kemur fram í athugasemd jarðfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Síðast urðu skjálftar af þessari stærðargráðu þann 5. október og 28. júlí. Nokkrir ...
Mannskæð drónaárás nærri markaði
📅 19.10.2026 👁️ 4
Mannskæð drónaárás nærri markaði
Að minnsta kosti 80 voru drepnir í drónaárás í suðurhluta Súdan í gær. Árásin var við samgöngumiðstöð nærri markaði í Al-Dibab í Vestur-Kordofan, en þ...
Gianni Infantino: Uefa gives Fifa deadline to release key documents
📅 19.10.2026 👁️ 4
Gianni Infantino: Uefa gives Fifa deadline to release key documents
European governing body Uefa tells Fifa it must release key documents related to its governance and decision-making by 2 November.
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum
📅 19.10.2026 👁️ 4
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum Fréttin19. október 2026Erlent, Innlent,...
Saka Ingu um skæting og hel­beran dóna­skap - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Saka Ingu um skæting og hel­beran dóna­skap - Vísir
Sigurjón virtist þar vera að vísa til þess að stjórnarandstaðan hefði gert sig bera af ofurviðkvæmni í hinu pólitíska argaþrasi þar sem menn hafa eina...
Skjálfti 5,2 að stærð í Bárðarbungu
📅 19.10.2026 👁️ 4
Skjálfti 5,2 að stærð í Bárðarbungu
Skjálfti af stærðinni 5,2 varð í Bárðarbungu klukkan korter í þrjú. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt, flestir minni en 2 að stærð. Nokkrir skjálftar ...
Frá viðarkurli til vítissóda – loftslagið og rétttrúnaðurinn
📅 19.10.2026 👁️ 4
Frá viðarkurli til vítissóda – loftslagið og rétttrúnaðurinn
Frá viðarkurli til vítissóda – loftslagið og rétttrúnaðurinn Fréttin19. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsso...
Er gervigreindin okkar eina vopn gegn einokun RÚV?
📅 19.10.2026 👁️ 4
Er gervigreindin okkar eina vopn gegn einokun RÚV?
Er gervigreindin okkar eina vopn gegn einokun RÚV? Fréttin19. október 2026Aðsend grein, Gervigreind, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skri...
Ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á English Pub
📅 19.10.2026 👁️ 4
Ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á English Pub
Héraðssaksóknari hefur ákært erlendan mann á fertugsaldri fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás fimmtudaginn 14. mars árið 2024, á veitingastaðnum En...
Ráðherra í stjórnarandstöðu
📅 19.10.2026 👁️ 4
Ráðherra í stjórnarandstöðu
Ráðherra í stjórnarandstöðu Fréttin19. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Þorgerður Katrín ut...
Lögregla stýrði umferð til að liðka fyrir sjúkraflutningum
📅 19.10.2026 👁️ 4
Lögregla stýrði umferð til að liðka fyrir sjúkraflutningum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stýrði umferð vegna bráðra sjúkraflutninga af Suðurlandi. Þetta staðfestir Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn....
Kraumar enn í Wolt-sendlum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Kraumar enn í Wolt-sendlum - Vísir
Fyrir rúmum mánuði lögðu sendlar hjá Wolt tímabundið niður störf, mótmæltu við skrifstofur fyrirtækisins og vísuðu til þess að laun þeirra hefðu verið...
Skólar rýmdir eftir sprengjuhótanir íslamista á Norður-Írlandi – Allt að 300 skólar fengu hótun
📅 19.10.2026 👁️ 4
Skólar rýmdir eftir sprengjuhótanir íslamista á Norður-Írlandi – Allt að 300 skólar fengu hótun
Skólar á Norður-Írlandi voru rýmdir í morgun eftir að þeim bárust sprengjuhótanir í tölvupósti. Foreldrar voru beðnir að sækja börnin sín þegar í stað...
Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða - Vísir
Börnin voru sum bundin á meðan þau sveltu. Yfirvöld fundu rúmlega fjögur hundruð lík í grunnum gröfum í Shakahola-skógi. Þar leiddi Mackenzie fylgjend...
Sameinuðu þjóðirnar draga úr aðstoð á Gaza vegna fjárskorts
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sameinuðu þjóðirnar draga úr aðstoð á Gaza vegna fjárskorts
Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna greindi frá því í morgun að hætta þurfi mánaðarlegum stuðningi við hálfa milljón íbúa á Gaza vegna fjárskorts. Shaun H...
Costanza á klakanum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Costanza á klakanum - Vísir
Fréttastofa hefur eftir heimildum að Alexander hafi verið á ferðalagi um Suðurlandið og meðal annars kíkt á veitingastaðinn Smiðjuna í Vík í Mýrdal þa...