Guðmundur Hjaltason fyrrum framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis hvetur til þess að þingsályktunartillaga um rannsókn á störfum réttarvörslu- og eftirlitsaðila í kjölfar bankahrunsins árið 2008 verði samþykkt. Guðmundur sætti rannsókn í fjölda mála eftir hrunið en var ákærður í einu þeirra og á endanum sýknaður, en í því máli þótti raunar sannað að ásetningur hans hafi staðið til þess að misnota aðstöðu sína.
Guðmundur vill láta rannsaka þá sem rannsökuðu hann - Var ákærður eftir Hrunið - Tók þátt í fléttu við einkavæðingu Búnaðarbankans