Guðlaug Málfríður Pálsdóttir hefur verið skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja til næstu fimm ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Guðlaug tekur við embættinu 1. ágúst.
Í tilkynningunni kemur fram að Guðlaug búi yfir 30 ára reynslu hjá skólanum og þar hafi hún gegnt fjölbreyttum störfum og ábyrgðarhlutverkum, meðal annars sem kennari, sviðsstjóri, áfangastjóri, aðstoðarskólameistari og settur skólameistari.
Guðlaug tekur við af Kristjáni Ásmundssyni sem sagði af sér í apríl vegna óánægju með húsnæðismál skólans. Hann sagði stjórnvöld hafa sýnt áhugaleysi þegar kæmi að því að bæta húsakost. Kristján hafði starfað við skólann í 40 ár og verið skólameistari í tæp fjórtán.
Tvær sóttu um starfið, en hinn umsækjandinn var Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir sviðsstjóri.