Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt, sem sér um Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ, og Seltjarnarnes.
Í umdæmi Lögreglustöðvar tvö, sem sér um Hafnarfjörð og Garðabæ, var óskað eftir aðstoðar lögreglu vegna líkamsárásar við bar.
Og hjá lögreglustöð þrjú, sem er með Kópavog og Breiðholt, var óskað aðstoðar vegna líkamsárásar í fjölbýlishúsi.
Þá var óskað eftir aðstoð vegna slagsmála við samkomustað í umdæmi lögreglustöðvar fjögur, sem sér um Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ.