Tveir menn voru vistaðir í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar á umfangsmiklum þjófnaði í matvöruverslunum.
Mennirnir eru skilríkislausir að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, og þarfnast málið frekari rannsóknar.
Alls fékkst lögregla við 66 mál á tímabilinu 05.00-17.00 í dag og hafði í nógu að snúast, en henni bárust meðal annars tilkynningar um innbrot í fyrirtæki og líkamsárás á veitingastað, ásamt því að bregðast við afdrifamiklum fíkniefnaakstri.