Grenjaði, veipaði og keyrði stans­laust - Vísir

Grenjaði, veipaði og keyrði stans­laust - Vísir

Grenjaði, veipaði og keyrði stans­laust - Vísir

Snjólaug er 42 ára, einhleyp og eignaðist sitt fyrsta barn fyrir þremur árum, soninn Kára Hrafn. Hún ólst upp í Noregi og svo Frakklandi en flutti ellefu ára í Hafnarfjörð og segir Ísland hafa hentað henni betur þar sem hún sé brussa og það hafi ekki endilega passað frönskum dömum. 

Húmorinn er mikið haldreypi í lífi Snjólaugar.Vísir/Anton

Síðar lærði Snjólaug handritaskrif í London, bjó í mörg ár í stórborginni með fullt af meðleigjendum og fylgir sínu eigin tempói. Í dag er hún einn vinsælasti grínari landsins, kemur fram víða um land og er meðal þeirra sem skrifa Skaupið í ár. 

Einhleyp og týnd í stórborginni

Hún ræddi við blaðamann um berskjöldun, að hafa stanslausan húmor fyrir sjálfri sér, heilunina sem því fylgir, væntanlegar uppistandssýningar í Bæjarbíói og á Akureyri, upphafið og margt fleira.

„Ég byrjaði 29 ára í uppistandinu og það er kannski svolítið seint, mér finnst allavega flestir byrja töluvert fyrr. Þetta byrjaði allt á því að ég fór að gera grín að eigin aðstæðum. Á þessum tíma bjó ég í London og hafði kannski ekki mjög ákveðna hugmynd um það hvað ég ætlaði að gera í framtíðinni. 

Ég var einhleyp, svolítið týnd og bjó með milljón manns í hálfgerðri kommúnu á meðan mér fannst vinkonur mínar á Íslandi komnar á allt annan stað og meira settlaðar. Þannig að ég gerði svolítið grín að því hvað ég var mikill jólasveinn miðað við þær og fyrstu brandararnir mínir snúast að mestu um það. Þar kviknar löngunin að hella mér í grínið, því það er oft svo mikill sálfræðingur í gríninu,“ segir Snjólaug kímin og bætir við að það hafi verið auðvelt fyrir hana að heillast af þessu.

Snjólaug fann strax heilun í uppistandinu.Vísir/Anton

„Að fara upp á svið, tala um eitthvað sem þú ert að ganga í gegnum og fá hláturinn til baka þar sem áhorfendur jafnvel skilja og tengja, sú tilfinning er engri lík. Ég nennti ekki til sálfræðings, það var svo dýrt, þannig ég var að vinna mig í gegnum alls konar með því að skrifa fyndna dagbók sem ég las upp fyrir heilan sal. Það er rosaleg heilun og úrvinnsla sem fylgir því.“

Sigraði og lenti svo harkalega á jörðinni

Ferill Snjólaugar hófst þegar hún tók ákvörðun um að skrá sig í uppistandskeppni í London. Hún flutti upphaflega út fyrir meistaranám í handritaskrifum og dvölin ílengdist eftir útskriftina.

„Þessi lífsstíll úti var mjög frábrugðinn því sem þekktist heima og ég held að mörgum hafi þótt skrítið að heyra frá því sem ég var að gera, í námi sem var kannski ekki mjög skýr framtíð í og að skrá mig í uppistandskeppni,“ segir Snjólaug og skellir upp úr.

„En ég undirbjó mig vel og fann strax hvað mér fannst gaman að skoða hvernig væri hægt að nota orðin og talanda, ýkja hluti og tilfinningar og búa til eitthvað fyndið. Þetta var smá brjálæði, að ákveða að taka þátt, en ég kýldi á það og vann keppnina í fyrsta skipti sem ég tók þátt. 

Auðvitað verð ég þá svolítið góð með mig og held ótrauð áfram að mæta á open mic kvöld í London. Í annað skipti gekk alls ekki jafn vel, þannig ég lenti harkalega á jörðinni,“ segir Snjólaug brosandi en hún missti þó ekki dampinn.

Af því það gekk svona svakalega vel í fyrstu tilraun þá vissi ég hvað þetta gat verið skemmtilegt. Það er geggjuð tilfinning sem fylgir því þegar heill salur hlær að þér þegar þú ert að vinna úr krumpum í sálinni. Ef ég hefði klúðrað þessu í fyrstu tilraun þá hefði ég aldrei haldið áfram því það er líka mjög niðurbrjótandi. Þú getur líka ekki kennt neinum um, það er enginn leikstjóri eða utanaðkomandi aðili sem stýrir þessu, þetta er bara allt á þér. 

Sú tilfinning er hræðileg, þá ferðu bara heim í bólið og grætur í fósturstellingunni.“

Niðurlægjandi hliðar óumflýjanlegar

Snjólaug segist þó vera með breiðara bak í dag og sé fljótari að jafna sig.

„Stundum er það þannig að fólki finnst ég ekki fyndin og það er bara allt í lagi en yfirleitt er hægt að kenna einhverju um ef það eru takmarkaðar móttökur fyrir uppistandinu. Til dæmis ef maður er á árshátíð og salurinn er þannig uppsettur að fáir sjá mann eða fólk er orðið mjög hresst og er ekki að hlusta. Það getur alveg verið auðvelt að hugga sig við það og þetta fer ekki alveg eins í egóið og það gerði. 

Ég get ekki enn alveg aðskilið sjálfa mig frá uppistandaranum en veggurinn er þykkari. Í upphafi var þetta bara örþunn slæða, ég var uppistandarinn og grínið var ég. Auðvitað er samt niðurlægjandi að keyra heim frá til dæmis Hveragerði eftir feilað gigg. Sú bílferð getur verið alveg smá tilvistarkrísa bara: Hvað ertu að gera við lífið þitt?“ segir Snjólaug hlæjandi. 

Tilvistarkrísan er óumflýjanlegur hluti af gigglífinu.Vísir/Anton

Hún hefur líka geta leitað í visku annarra reynslubolta hvað þetta varðar.

„Uppistandarinn Sarah Millican er með góða reglu. Ef það er gigg um kvöldið gefur hún sér tíma til miðnættis til að vera annaðhvort ógeðslega montin eða ógeðslega leið. Svo um leið og nýr dagur kemur þá er þetta bara búið. Ég reyni að tileinka mér þetta.“

Betra að vera brussa á Íslandi

Snjólaug eyddi unglingsárum sínum í Hafnarfirði og kom ellefu ára til landsins ansi veraldarvön.

„Ég er skilnaðarbarn og á risastóra flókna fjölskyldu sem ég geri mikið grín að. Þetta er alvöru „modern family“, með stjúpmæður- og feður og mikið fjör. Mamma og pabbi lærðu í Noregi og unnu í Frakklandi þangað til við fluttum heim. 

Ég var smá eins og fín frönsk dama þegar ég kom inn í kraftgallakúltúrinn hérlendis sem var mjög gaman. 

Ég passa betur inn í íslenska menningu en franska, ég er rosalega skandinavísk í mér og líka mjög mikil brussa, sem franskar konur eru ekki,“ 

segir hún kímin.

Snjólaug var, þvert á það sem margir myndu hugsa um uppistandara, frekar feimið barn og segist frekar feimin yfir höfuð.

„Ég hef aldrei verið mikill trúður þrátt fyrir að hafa alveg verið félagslynd og alltaf átt mikið af vinum. Þegar ég var að byrja og sagði fólki í kringum mig að ég ætlaði að fara út í uppistand var fólk alls ekki sannfært. Ég ber það ekki utan á mér að ég sé ógeðslega fyndin og þetta kemur fólki oft á óvart.“

„Fann mann sem vildi barna mig“

Undanfarið misseri hefur Snjólaug gengið í gegnum miklar breytingar á sínu lífi og alltaf heldur húmorinn áfram að vera henni haldreipi.

„Ég var einhleyp þangað til ég varð 39 ára og fann þá mann sem vildi barna mig. Fram að því var ég mikið að miða uppistöndin við það að ég væri einhleyp og hvað mig langaði í barn. Ég var um tíma mikið að skoða sæðisbanka og gerði svolítið grín að því ferli líka. 

Við barnsfaðir minn erum hætt saman en erum mjög góðir vinir og strákurinn okkar er orðinn þriggja ára. Núna er ég því farin að fjalla svolítið um þetta og öll uppeldisráðin sem ég fæ úr fjölbreyttum áttum, allt frá ömmum og öfum yfir á TikTok. 

Ég geri líka mikið grín að vinkonuhópnum mínum, við erum búnar að reyna í svona hundrað ár að skipuleggja vinkonuferð til útlanda en endum alltaf á að rífast inni á hópspjalli um hvenær og hvert. Ég er að grínast með alls konar hluti sem ég held að konur og karlar sem dýrka konur tengi við.“

Góð skilnaðarráð frá pabba

Ný uppistandssýning Snjólaugar ber heitið Mjög fín bara og segir Snjólaug að það nái ágætlega utan um hennar líðan.

„Þetta er titillinn á mínu lífi líka og ég er búin að ná jafnvægi eftir þetta ferðalag. Það var leiðinlegt að við barnsfaðir minn höfum hætt saman og tilhugsunin um að sjá ekki barnið sitt á hverjum degi var mjög erfið, sérstaklega í byrjun en svo lærir maður að lifa með henni.“

Snjólaug fékk góð skilnaðarráð frá fjölskyldumeðlimum sínum.Vísir/Anton

Þá var líka gott að eiga góða reynslubolta að.

„Það hefur verið mikið um skilnaði í fjölskyldunni og pabbi var sérstaklega mikið til staðar, hann hefur gengið í gegnum þetta nokkrum sinnum og var með góð ráð,“ segir Snjólaug og hlær. Ég tala einmitt um það í nýju uppistandssýningunni hvað ég passa vel inn í fjölskylduna og geri grín að öllum þessum tengslum og sprengjusvæðum sem eru í fjölskyldum.“

„Grenjandi, keyrandi, veipandi“

Þrátt fyrir að vera smá feimin er Snjólaug mjög óhefluð í samskiptum og á auðvelt með að deila persónulegum sögum.

„Oft við fyrsta kaffibolla í vinnunni er ég strax búin að segja alltof mikið. Þegar mér líður illa þá grenja ég ótrúlega mikið allan daginn, úti um allt og sérstaklega úti í umferðinni. Fyrstu vikurnar eftir sambandsslitin hefði ég getað skírt uppistandssýninguna Grenjandi, keyrandi, veipandi. 

Því ég keyrði stanslaust, grenjaði, veipaði og hlustaði viljandi á sorgleg lög sem létu mig gráta meira. Mér finnst konur almennt svo góðar í að ræða hlutina aftur og aftur og svo allt í einu ertu komin yfir þá. Þessi kvennasamstaða er svo stórkostleg, þegar þér líður illa eru svo margar sem grípa þig, deila sambærilegum reynslum og gefa góð ráð. 

Það er svo geggjað að líða illa í kringum konur.“

Heiður að fá að vera skotspónn

Þrátt fyrir að nýta fólkið í kringum sig mikið í uppistönd sín segist Snjólaug aldrei komast í klandur vegna þess.

„Ég reyni alltaf að vanda mig og ég ræði aldrei eitthvað sem er mjög viðkvæmt. Svo er fólkið í kringum mig það athyglissjúkt að það móðgast frekar ef ég geri ekki grín að því,“ segir Snjólaug kímin og bætir við: „Þeim finnst held ég smá heiður að fá að vera með í þessu.“

Snjólaug verður með sýningu á laugardaginn í Bæjarbíói.Aðsend

Það er nóg á döfinni hjá Snjólaugu en hún er með tvær stórar uppistandssýningar á döfinni, á laugardaginn næstkomandi í Bæjarbíói og 6. nóvember í Múlabergi á Akureyri.

„Samhliða uppistandinu er ég í fimmtíu prósent starfi hjá auglýsingastofunni Hvíta húsinu. Ég er líka að skrifa skaupið um þessar mundir og í alls kyns verkefnum, ég skrifaði meðal annars seríuna Ljúfa líf sem er núna í tökum á Tenerife og verður sýnd á Sýn. Þannig að það er nóg um að vera og sjaldan lognmolla,“ segir Snjólaug glöð í bragði að lokum.

#grenjaði #keyrði #stanslaust #veipaði #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262951023d/grenjadi-veipadi-og-keyrdi-stans-laust

📰 Aðrar fréttir

Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Samkvæmt útreikningi fréttastofu nemur meðaltal fjarveru utanrík...
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
📅 22.10.2026 👁️ 1
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
Skólaár byrjar og endar. Næsta skólaár tekur við. Fyrir þann sem bíður eftir nauðsynlegri aðstoð getur þetta þýtt að enn eitt tækifærið líður hjá. Þeg...
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
📅 22.10.2026 👁️ 1
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
Meintur nauðgari hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. október, en hann hafði verið í felum til að sleppa annars vegar undan ákæru fyrir kyn...
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
Yfirvöld í Suður-Kóreu ætla að senda bréf til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem kallað verður eftir því að ráðamenn í Norður-Kóreu biðjist afsöku...
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
Bransamiðillinn Hollywood Reporter greinir frá ráðningunni. Spennumyndin Hafið er svart (Dark Ocean á ensku) er framleidd af Glassriver en Baldvin Zop...
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
📅 22.10.2026 👁️ 1
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki ætla að styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að draga formlega til ba...
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
Myndin er úr smiðju bandaríska sjónvarpsmannsins Nathan Fielder sem gert hefur garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You og síðast The Rehea...
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
📅 22.10.2026 👁️ 1
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
Night-time traffic restrictions are due to begin on the TF-1 this Sunday, 25th October, as the Tenerife Cabildo starts a six-month programme to resurf...
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
Skýrsla vinnuhóps sem Alma Möller heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2025 var birt í dag. Markmið hópsins var að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþj...
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir stofnunina hafa viljað halda Eggerti áfram. Vísir greindi frá ráðningu h...
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum. Stóri bróðir/Vigilant er samevrópskt samstarfsverkefni íslenska framleiðslufyrirtækisins ACT4, streym...
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
Þetta segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 19. október og staðfestur af Landsrétti í gær. Í honum segir að í greinargerð ...
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA 2027. Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, ...
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
📅 22.10.2026 👁️ 2
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
Systir Matthew Perry sagði að hinn frægi þáttur Friends, þar sem persóna hans, Chandler, gengur að eiga Monicu, hafi verið fjölskyldu Perry bæði gleði...
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
📅 22.10.2026 👁️ 2
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
Ekki er laust við að margir hafi hreinlega verið búnir að gleyma Sigurði Inga Jóhannssyni, fyrrverandi formanni Framsóknar. Ugglaust héldu margir að h...
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 2
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 1
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabankanum, undirritar umsögn bankans ásamt Flóka Halldórssyni, framkvæmd...
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir Alrík­is­sak­sókn­ari segir mann­inn hafa aflað upp­lýs­inga um fram­leiðslu bryn­var­inn...
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
📅 22.10.2026 👁️ 2
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
The congresswoman said federal agents seized over a dozen items, including cell phones and notebooks, as part of a federal investigation.
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
📅 22.10.2026 👁️ 2
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
Landsréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald til 16. nóvember yfir karlmanni sem er grunaður um nauðgun. Hann hefur játað sök að hluta. Illa hefur gengið...
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
Alvarlegir veikleikar fundust í PHP-forritunarmálinu sem er notað fyrir um sjötíu prósent vefsíðna heimsins. Vegna gallanna var fjölmörgum vefsíðum lo...
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
Sænsk yfirvöld rannsaka enn tilraunir hóps manns til þess að kaupa atkvæði í Dölunum í Norður-Svíþjóð í þingkosningunum sem fóru fram í síðasta mánuði...
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Margrétar gerir málinu skil í Facebook færslu. Þar gerir hann skóflustungu að nýju fangelsi Stóra-Hrauni að umfjölluna...
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
📅 22.10.2026 👁️ 2
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
Um níu milljón einnota frauðplastkassar, fullir af ferskum fiski og ís, eru á hverju ári fluttir út frá Íslandi, aðallega með flugi, til viðskiptavina...
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
Það sem Harry Bretaprins sér hvað mest eftir í lífinu er seinasta símtalið sem hann átti við móður sína, Díönu prinsessu, áður en hún lést í bílslysi ...
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
📅 22.10.2026 👁️ 4
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
Engin staðfest innbrot hafa orðið vegna öryggisgallans í PHP-forritunarmálinu að sögn Antons Más Egilssonar, forstjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis....
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
📅 22.10.2026 👁️ 2
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
Some cities including Lyon and Nice have banned all protests, and the French president said only authorised demos would be allowed.
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
📅 22.10.2026 👁️ 4
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
Every winter, the Canary Islands draw visitors from much further away than Manchester or Madrid. Canadians escaping frozen mornings and Americans chas...
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
📅 22.10.2026 👁️ 4
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
Leigusali í Lundúnum segir að fyrirtæki sem útvegar breskum stjórnvöldum húsnæði fyrir hælisleitendur hafi boðið honum 4.500 pund í mánaðarleigu fyrir...
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot, er að sögn lögmanns hans fárveikur í fangelsi. Biður hann fólk um að biðja fyrir Tate.B...
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
Elva Hrönn Hjartardóttir, fjáröflunarstýra hjá Amnesty International, er nýkomin frá París. Hún segir fréttir af borginni í ljósum logum gefa ranga my...
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í þremur nýjum skýrslum Ríkisendurskoðunar um stofnanakerfi ríkisins sem kynntar voru fyrir stjórnskipunar- og efti...
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
📅 22.10.2026 👁️ 4
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
A man was rescued from an overturned car in Lanzarote yesterday afternoon (Wednesday) after firefighters used hydraulic tools to open the driver’s doo...
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
Ríkisstofnunum hefur fækkað um 18,7% frá því árið 2020 og telur Ríkisendurskoðun stjórnvöld hafa brugðist við að fullu við tveimur af fjórum tillögum ...
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
Þorsteini Má Baldvinssyni, fyrrverandi forstjóra Samherja, og lögmanni hans tókst ekki að sýna fram á að hann hefði orðið fyrir miska þó að persónuupp...
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
📅 22.10.2026 👁️ 4
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
The BBC's technology correspondent Joe Tidy explains how it happened, and what it means for you.
Færsluóður mið­aldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Færsluóður mið­aldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ - Vísir
Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal veltu því sennilega margir fyrir sér í gærkvöldi hvers vegna Gunnar Helgason, barnabókahöfundur og leikari, deildi ...
Harry Brook hits 202 for England against Sri Lanka in ODI tri-series
📅 22.10.2026 👁️ 4
Harry Brook hits 202 for England against Sri Lanka in ODI tri-series
Captain Harry Brook becomes the first England batter to make a double century in a one-day international with a sensational 202 against Sri Lanka in R...
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
📅 22.10.2026 👁️ 5
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin22. október 2026InnlentLeave a Comment Hákon Jóh...
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
📅 22.10.2026 👁️ 5
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri þáttaröð hinna vinsælu sjónvarpsþátta The White Lotus, hefur verið ráðinn í aðalhlutverk ný...
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
📅 22.10.2026 👁️ 5
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
A five-year-old girl and two adults were taken to hospital after two cars collided on the TF-1 near Las Chafiras in southern Tenerife this morning (Th...
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
📅 22.10.2026 👁️ 5
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
Lögmaðurinn og samfélagsrýnirinn Arnar Þór Jónsson fékk martröð í nótt sem hann óttast að verði að veruleika. Í færslu í hópnum Ísland – Þvert á flokk...
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
📅 22.10.2026 👁️ 5
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segir fangelsið á Hólmsheiði vera mannfjandsamlega byggingu og er hann ekki bjartsýnn á að nýtt öryggisfangelsi sem...
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 5
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
Vinna við farþegasalinn við Þönglabakka er þegar hafin og á að ljúka 5. desember. Framkvæmdir við stöðina utandyra gætu hafist vorið 2027, en sú tímas...
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
📅 22.10.2026 👁️ 5
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Commen...
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
📅 22.10.2026 👁️ 5
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu Fréttin22. október 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar:...
Trial hears Tommy Robinson hired private detectives to find Daily Mail reporters
📅 22.10.2026 👁️ 4
Trial hears Tommy Robinson hired private detectives to find Daily Mail reporters
The political activist denies wanting to expose two Daily Mail journalists to threats of violence.
Tommy Robinson hired detectives to find Daily Mail journalists, court told
📅 22.10.2026 👁️ 2
Tommy Robinson hired detectives to find Daily Mail journalists, court told
The political activist denies wanting to expose two Daily Mail journalists to threats of violence.
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 5
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en hundruð íslenskra vefsíðna voru útsettar fyrir gallanum og lágu margir vefir niðri á tímabili í...