Gayle King, fjölmiðlakona og besta vinkona Opruh Winfrey, opnaði sig um framhjáhald á dögunum. Hún greindi meðal annars frá því hvernig hún kom að fyrrverandi eiginmanni sínum í rúminu með annarri konu.
„Ég kom heim og náði honum,“ sagði King í hlaðvarpsviðtali að því fram kemur á vef Page Six. King var gift William Bampus á árunum 1982 til 1993.
„Ég trúi því ekki að þú sért hér og þú ert að gera þetta,“ sagði King við konuna sem maðurinn var með en hún var á handklæðinu. „Ég hélt að við værum vinkonur,“ bætti King einnig við. Eftir uppákomuna skutlaði Bampus framhjáhaldinu út á lestarstöð og King hringdi í bestu vinkonu sína, Opruh Winfrey.
Baðst afsökunar
Eftir að King opnaði sig um atvikið í hlaðvarpsþættinum sendi fyrrverandi eiginmaður hennar opinbera yfirlýsingu á vef Page Six. Þar bað hann fyrrverandi eiginkonu sína afsökunar sem og son sinn, tengdadóttur og barnabörn afsökunar. Sagði hann að King ætti rétt á að rifja þennan erfiða kafla upp sem breytti hjónabandi og fjölskyldu þeirra. „Ég virði hennar rétt til að segja hennar sögu,“ sagði hann meðal annars í yfirlýsingunni.
