Atkvæðagreiðsla verður í franska þinginu í dag um hvort heimila eigi dánaraðstoð í landinu. Flutningsmaður lagafrumvarpsins segir að nú sjái fyrir endann á fjórtán ára deilum um málefnið í þinginu.
Lögin voru samþykkt í neðri deild franska þingsins en þeim hafnað í öldungadeildinni. Ríkisstjórnin hefur með vísan í stjórnarskrá heimilað neðri deildinni að taka ákvörðun um löggjöfina.
Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, hefur farið fram á það að stjórnarskrárdómstóll landsins taki löggjöfina til athugunar eftir samþykkt. Þannig eigi að bregðast við því að vantað hafi upp á umræður í öldungadeildinni.
Úrskurðir stjórnarskrárdómstóls Frakklands eru endanlegir og geta ógilt löggjöf eða lýst áhyggjum af ákveðnum hluta löggjafar.
Verði lögin samþykkt þá bætist Frakkland í hóp Hollands, Belgíu, Sviss og Kanada sem hafa lögleitt dánaraðstoð.