Greidd verða atkvæði um umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottvísunarstöð á Alþingi í dag. Þar á að hýsa útlendinga sem vísa á úr landi og er gert ráð fyrir að stöðin verði opnuð í byrjun desember.
Samkvæmt breytingartillögu við frumvarpið verða barnafjölskyldur vistaðar í rými sem er aðgreint einstaklingum og skulu þær fá afmarkað rými með að lágmarki svefnaðstöðu, tómstundasvæði innan- og utandyra, auk salernis- og eldunaraðstöðu.