Undirokun á réttindum launafólks hefur aukist um allan heim, segir í nýrri ársskýrslu Alþjóðasambands verkalýðsfélaga, sem kynnt var í morgun. Skýrslan tekur til 151 ríkis og reyndust 72 prósent þeirra neita launafólki um að leita réttar síns. Þá hafi ríki Evrópu og Ameríku ekki komið verr út úr síðan árið 2014, segir í skýrslunni, og vísað til aukningar í stafrænu eftirliti til að fylgjast með og ógna starfsfólki
„Vandinn er ekki lengur bundinn við jaðarinn heldur er hann kominn inn í kjarna lýðræðissamfélaga, segir Luc Triangle, framkvæmdastjóri Alþjóðasambands verkalýðsfélaga, í yfirlýsingu.
Í skýrslunni kemur fram að brotið hafi verið á verkfallsrétti í 87 prósentum ríkja, sem er sama hlutfall og síðustu tvö ár á undan, og réttur til kjarasamningsviðræðna var takmarkaður í 80 prósentum ríkja. Alþjóðasambandið setti Bandaríkin á gátlista þess fyrir kerfisbundin brot gegn réttindum launafólks.
Argentína og Panama bættust á lista yfir þau tíu ríki þar sem staða launafólks er verst en hin átta eru Belarús, Ekvador, Egyptaland, Eswatini, Mjanmar, Nígería, Túnis og Tyrkland.
Alþjóðasambandið fordæmir það sem það kallar „auðkýfingabyltingu“, með stuðningi jaðarhægri og einræðissinnaðra leiðtoga, sem miði að því að ganga á réttindi og hámarka hagnað. Færri ríki hefðu samráð við verkalýðssamtök áður en ný vinnulöggjöf væri sett.
„Ríkisstjórnum er að mistakast að vernda launafólk, og í mörgum tilfellum eru þær markvisst að grafa undan þeim,“ segir Triangle. Þetta hafi leitt til „samræmdrar árásar á lýðræði“.
Alþjóðasamband verkalýðsfélaga hefur tekið saman skýrslu árlega frá árinu 2014 og metur stöðuna í 151 ríki út frá viðmiðum sem byggja á alþjóðlegum sáttmálum.