Grænland og ESB innsigla samstarf
„Gríðarlegar“ fjárfestingar frá Evrópusambandinu boðaðar á Grænlandi, sem verður „sífellt mikilvægara fyrir ESB“.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, heldur til Grænlands í dag í tveggja daga heimsókn til að ítreka stuðning sambandsins við þetta næsta nágrannaland Íslands og sjálfstjórnarsvæði Danmerkur, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur augastað á.
Á mánudag er fyrirhugað að hún undirriti sameiginlega yfirlýsingu Evrópusambandsins og Grænlands.
„Grænland verður sífellt mikilvægara fyrir ESB sem hlið að norðurslóðum og vegna landpólitískrar legu sinnar, mikilvægra hráefna og hlutverks í öryggismálum á norðurslóðum,“ sagði Marc Jacobsen, fræðimaður við danska varnarmálaháskólann, í samtali við AFP-fréttastofuna.
Trump hélt því afdráttarlaust fram fyrr á þessu ári að Bandaríkin þyrftu að ráða yfir eyjunni víðáttumiklu á norðurslóðum af þjóðaröryggisástæðum, þótt hann útilokaði að lokum að innlima hana með valdi.
Vinnuhópur á vegum Danmerkur, Grænlands og Bandaríkjanna hefur síðan fundað reglulega til að ná samkomulagi um samstarf til framtíðar.
Í kjölfar hótana Trumps lýstu Evrópuríki almennt yfir stuðningi við Danmörku og Grænland. Í janúar hét von …