Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands segir að sums staðar verða vindstrengir við fjöll sem vegfarendur þurfa að gæta ín á, sér í lagi þeir sem eru á ökutækjum sem viðkvæm eru fyrir vindi.
„Góðar líkur eru á að margir sjái eitthvað til sólar undir kvöld,“ segir í hugleiðingunum.
Töluvert hefur rignt á suðvesturhorninu þetta sumarið og bíða íbúar höfuðborgarsvæðisins ólmir eftir því að sólin láti sjá sig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Norðan 3-8 m/s og léttskýjað að mestu, en norðvestan 8-13 á norðaustanverðu landinu, skýjað þar og smávegis væta. Hiti 8 til 19 stig, svalast við norðausturströndina.
Á laugardag:
Norðlæg átt 3-10, en norðvestan 8-13 við austurströndina. Bjartviðri um landið sunnan- og vestanvert. Skýjað norðaustanlands og sums staðar dálítil rigning eða súld. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 og bjart með köflum, en skýjað norðaustantil. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Suðurlandi.
Á mánudag og þriðjudag:
Norðaustanátt og skýjað fyrir norðan, annars bjart með köflum. Líkur á stöku skúrum á víð og dreif. Heldur svalara.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir áframhaldandi norðlæga átt. Vætusamt fyrir norðan og austan, en bjartviðri suðvestantil. Hiti 8 til 15 stig.