Kaffidrykkjufólk getur tekið nýrri vísindalegri yfirlýsingu American Heart Association, bandarísku hjartasamtakanna, fagnandi. Samkvæmt samtökunum er neysla á allt að 400 milligrömmum af koffíni á dag almennt talin örugg fyrir flesta fullorðna.
Magnið samsvarar allt að fimm litlum bollum af venjulegu koffínríku kaffi. Samtökin segja nýjustu rannsóknir jafnframt benda til þess að kaffidrykkja geti tengst minni hættu á hjartasjúkdómum, hjartabilun, heilablóðfalli og sykursýki af tegund 2.
Tveir til fjórir bollar tengdir minni áhættu
Í yfirlýsingunni kemur fram að neysla tveggja til fjögurra kaffibolla á dag hafi í rannsóknum tengst minni hættu á hjartasjúkdómum, hjartabilun og heilablóðfalli.
Regluleg neysla á svörtu koffínríku kaffi hefur einnig tengst minni hættu á að fólk þrói með sér sykursýki af tegund 2. Vísindamennirnir taka þó fram að mögulegur ávinningur kunni að stafa af öðrum efnum í kaffinu en koffíninu sjálfu. Kaffi inniheldur meðal annars lífvirk efni sem geta haft bólgueyðandi áhrif.
Þetta þýðir þó ekki að sannað hafi verið að kaffidrykkja komi í veg fyrir þessa sjúkdóma. Flestar rannsóknirnar sem yfirlýsingin byggir á eru athugunarrannsóknir og geta því sýnt fram á tengsl, en ekki endilega orsakasamband.
Meira er ekki alltaf betra
Bandarísku hjartasamtökin leggja áherslu á að niðurstöðurnar séu ekki ávísun á ótakmarkaða kaffidrykkju. Þótt tveir til fjórir bollar á dag hafi tengst minni hættu á hjartabilun benda sumar rannsóknir til þess að neysla umfram fjóra bolla geti aukið hættuna.
Koffín getur einnig valdið tímabundinni hækkun á blóðþrýstingi og hjartslætti. Sumir finna fyrir hjartsláttarónotum, kvíða eða svefntruflunum eftir mun minna magn en 400 milligrömm.
„Það er engin ein regla sem hentar öllum,“ segir Gregory M. Marcus, prófessor við Kaliforníuháskóla og formaður hópsins sem vann yfirlýsinguna. Viðbrögð fólks við koffíni ráðist meðal annars af aldri, erfðum, lyfjanotkun, undirliggjandi sjúkdómum og því hversu hratt líkaminn brýtur koffínið niður.
Sykur og rjómi breyta dæminu
Niðurstöðurnar eiga fyrst og fremst við um venjulegt kaffi án viðbætts sykurs, bragðefna eða mikils magns af rjóma. Samtökin segja slíkar viðbætur líklegar til að draga úr mögulegum heilsufarslegum ávinningi kaffisins.
Einnig er gerður skýr greinarmunur á kaffi og orkudrykkjum. Háir koffínskammtar, eins og finna má í sumum orkudrykkjum og koffínskotum, geta aukið hættu á háum blóðþrýstingi og óreglulegum hjartslætti.
Vísindayfirlýsingin var birt í læknatímaritinu Circulation mánudaginn 20. júlí. Hún felur í sér samantekt á fyrirliggjandi rannsóknum en er ekki formleg klínísk ráðlegging um að fólk eigi að byrja eða auka kaffidrykkju sína.