Arkitektúr þarf að fá að tala sínu tungumáli betur og fyrr í ferlinu þegar kemur að skipulagningu byggðar.
Þetta segir Borghildur Sölvey Sturludóttir, arkitekt í teymi starfsumhverfisskipulags, í samtali við blaðamann að loknum kynningarfundi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, HMS, vegna útgáfu nýrra leiðbeininga um ljósvist í skipulags- og byggingarreglugerðum.
Leiðbeiningunum er ætlað að styðja við innleiðingu og framkvæmd á sviði dagsljóss, raflýsingar, ljósmengunar og útsýnis í byggingum í kjölfar nýrra ákvæða í byggingarreglugerð sem stuðla að fullnægjandi ljósvist í híbýlum.
Skref fram á við
„Okkur er enn að fjölga, sem betur fer, þannig að það hefur verið mikil pressa á uppbyggingu,“ segir Borghildur.
Hvað þéttingu byggðar varði þurfi að nýta svæðin betur og huga að innviðum.
„Ég held að allt sem við erum að gera í dag muni hjálpa okkur að gera þetta aðeins betur saman.“
Sameiginlegt markmið
Borghildur segir að hægt sé að draga mikinn lærdóm af þeim byggingum sem áður hafa verið byggðar, uppbyging hafi gengið vel á mörgum stöðum, en til þess að gera enn betur þurfi ferli uppbyggingar og hönnunar að haldast betur í hendur.
„Það þurfa svolítið allir saman að horfa á sama boltann, á sama markmið,“ bætir hún við.
Í leiðbeiningarbæklingi HMS segir: „Arkitektúr þarf að taka mið af áhrifum ljóss á dægursveiflur til að bæta svefngæði og svefnlengd. Einföld regla er að útsetja sig fyrir björtum dögum, dimmum kvöldum og myrkum nóttum til að styðja við svefngæði, svefnlengd, skap, afköst, minni og lærdóm. Vegna þess að lýsing hefur mikil áhrif á heilsu og frammistöðu fólks þarf virkilega að vanda til verks.“
