Knattspyrnumaðurinn Ibrahima Konaté hefur glímt við þunglyndi eftir erfitt síðasta ár.
Hann missti liðsfélaga sinn Diogo Jota síðasta sumar en Portúgalinn lést í bílslysi. Þá lést faðir hans í janúar eftir langvarandi veikindi.
Konaté, sem er á förum frá Liverpool og að semja við Real Madrid á Spáni, ræddi áföll og þunglyndi á France Inter radio.
„Það er hægt að glíma við þunglyndi í fótbolta líka. Þú þarft ekki að skammast þín fyrir það. Þunglyndi er persónubundið, það er djúpt inni í þér.
Þegar þú ert þunglyndur byrjar það í hjartanu og nær upp í heila og tekur yfir allan líkamann á þér að lokum. Það er mjög erfitt,“ sagði Konaté, sem var náinn Diogo Jota.
„Ég hafði ekki áhuga á neinu öðru eftir að hann dó. Maður fer aftur í fótbolta því maður hefur ekkert val. Við erum starfsmenn hjá félagi sem borgar þér laun.
Við höfðum ekkert val, við mættum aftur á völlinn til að spila fyrir hann og fjölskyldu hans. Þú jafnar þig ekki á svona en það er hægt að lifa með því,“ sagði hann.