Glansinn hverfur af stígvélunum

Glansinn hverfur af stígvélunum

Glansinn hverfur af stígvélunum

Glansinn hverfur af stígvélunum

Svart­ar bjarn­ar­skinns­húf­ur, rauð­ir jakk­ar, blá­ar bux­ur, byssusting­ur og gljá­andi stíg­vél. Þetta er há­tíð­ar­bún­ing­ur líf­varða dönsku hirð­ar­inn­ar. Sam­kvæmt regl­um um að­bún­að á vinnu­stöð­um verð­ur nú slak­að á kröf­um um há­glans­andi skófatn­að varð­anna.

Vaktaskipti við hallirnar fjórar á Amalienborg í Kaupmannahöfn eru iðulega fastur liður á heimsóknalista flestra sem leggja leið sína til Kaupmannahafnar. Oft er fjölmenni á torginu við hallirnar um hádegisbil þegar vaktaskiptin fara fram, ferðafólk áberandi en einnig heimamenn sem hafa alltaf mikinn áhuga á kóngafólkinu og öllu sem því tilheyrir. Þótt konungsfjölskyldan sé ekki mikið  útivið, í það minnsta ekki á torginu, má alltaf ganga að vörðunum vísum nótt sem nýtan dag við hallirnar.

„Það land er aumt sem aungvan kóng hefur,“ sagði Árni frá Geitastekk í ævisögu sinni. Hann gat trútt um talað því hann hafði um 44 ára skeið ferðast um heiminn, 1753 – 1797, og líklega fyrstur Íslendinga ferðast til Kína. Í bók sinni Á Íslendingaslóðum í Kaupmannahöfn segir Björn Th. Björnsson að ,,vissulega væri Kaupmannahöfn mörgu skartinu svipt ef menn væru ekki seint og snemma að dedúa í kringum kónginn“.  Þótt Danir séu kannski ekki seint og snemma að dedúa í kringum kónginn eða kóngafólkið fylgjast þeir grannt með öllum fréttum af fjölskyldunni á Amalienborg.

Húsnæðisvandræði konungs

Þegar Árni frá Geitastekk kom til Kaupmannahafnar eftir heimsreisuna bjó konungsfjölskyldan í Kristjánsborgarhöllinni en árið 1797 brann höllin nánast til grunna og Kristján VII húsnæðislaus. Þá  varð konungsfjölskyldunni til happs að Moltke greifi, sem hafði byggt eina hallanna fjögurra á Amalienborg var fús að selja sína höll og þangað flutti kóngurinn með fjölskylduna. Faðir Kristjáns VII, Friðrik V, hafði gefið lóðirnar fjórum aðalsættum, ásamt skipulagi og teikningum sem Nicolai Eigtved (1701 -1774) hafði gert, sá hinn sami og teiknaði Viðeyjarstofu. Gjöf konungs var háð því skilyrði að byggt yrði eftir teikningum Eigtved. Þegar konungsfjölskyldan flutti inn í Amalienborg átti það að vera tímabundin ráðstöfun á meðan verið væri að endurbyggja Kristjánsborg. Þegar til kom vildi konungsfjölskyldan ekki flytja frá Amalienborg og síðar eignaðist konungsembættið hinar Amalienborgarhallirnar þrjár, og þar er bústaður dönsku konungsfjölskyldunnar.

Lífvörðurinn

Konunglegi lífvörðurinn, Den Kongelige Livgarde eins og hann heitir var stofnaður 30. júní 1658. Stofnandinn var Friðrik III. Fyrr á því ári, nánar tiltekið 26. febrúar, var Hróarskeldusáttmálinn, friðarsamningur milli Danmerkur og Svíþjóðar undirritaður í Hróarskeldu eftir afgerandi ósigur Dana í Svíastríðunum svonefndu. Friðrik III var ekki trúaður á að sáttmálinn myndi halda og það kom reyndar á daginn að sá grunur konungs var á rökum reistur. Átök þessara þjóða stóðu árum og reyndar öldum saman, snerust einkum um yfirráð á Skáni og Eyrarsundi. Sú saga er löng og flókin og verður ekki sögð hér.

Lífvarðasveitin hefur gengið undir nokkrum nöfnum, upphaflega var sveitin fótgöngulið og fætur voru hluti nafnsins, síðar var fæti skipt út fyrir hest en núverandi heiti, Den Kongelige Livgarde, var fyrst tekið upp árið 1684 en endanlega fest í sessi árið 1961. Í daglegu tali er oftast talað um Livgarden.

Lífvörðurinn, sem telur 1100 til 1300 manns hverju sinni, er sérstök sveit innan hersins og skiptist í nokkrar deildir, vaktdeild, tónlistardeild (lúðrasveit) og deild sem annast ýmiskonar gæslu í samstarfi við lögreglu og her. Lífvörðurinn hefur aðsetur á tveimur stöðum, við Kongens have í Kaupmannahöfn (skammt frá Jónshúsi) og í Birkerød á Norður – Sjálandi. Til ársins 1962 voru eingöngu karlmenn í lífverðinum og hernum en þá var reglum breytt og konum fer fjölgandi þótt þær séu enn miklu færri en karlarnir. Árið 2023 voru reglur um tiltekna hæð, 169 cm fyrir konur og 175 cm fyrir karla afnumdar.

Lífvarðabúningurinn

Þegar Friðrik III stofnaði lífvörðinn var ákveðið að búningur varðanna skyldi vera rauður jakki og dökkar buxur. Höfuðfatið og skórnir voru með ýmsum hætti en smám saman urðu til ákveðnar reglur varðandi klæðnaðinn.  Rauði jakkinn er nú hátíðarbúningur en í annan tíma klæðast lífverðirnir svarbláum jökkum, buxurnar ætíð millibláar með hvítri rönd á utanverðri skálm. Það sem kannski vekur mesta athygli er höfuðfatnaður lífvarðanna, stóru svörtu loðhúfurnar. Þær voru fyrst teknar í notkun árið 1805 og eru nær óbreyttar frá þeim tíma. Þær eru úr kanadísku svartbjarnarskinni og vega 2 kíló, fokdýrar auðvitað en þær endast líka í 25 ár. Hökubandið er ekki látið ná undir hökuna en liggur milli höku og neðri varar. Ástæða þess er sú að ef þungt högg kemur á húfuna og hökubandið væri undir hökunni gæti höggið valdið því að sá sem húfuna bæri myndi hálsbrotna. Í dag er hætta á slíku höggi hverfandi en siðurinn hefur haldist.

Svo eru það skórnir

Þeir sem hafa fylgst með vaktaskiptum við Amalienborg (alla daga klukkan tólf á hádegi) hafa vafalaust séð að einn af yfirmönnum lífvarðarins (kallaður befalingsmann, bífalingsmaður) yfirleitt grænklæddur, yfirfer klæðnað varðanna. Oft hefur verið um það skrifað að bífalingsmaðurinn væri smásmugulegur í þessari skoðun sinni og algengustu aðfinnslur tengdust gjarna leðurstígvélum varðanna. Krafan hefur verið að stígvélin skuli vera svo gljápússuð að hægt sé að spegla sig í þeim. Minnsti blettur, hvað þá sýnileg rispa, hefur kostað aðfinnslu. Lífverðirnir hafa eytt miklum tíma í pússeríið, að gejle eins og það er kallað til að fá ekki áminningu. Þessi skópússun hefur farið fram í sérstökum herbergjum (pudsestuer) í búðum lífvarðarins. Skópússun er ekki talin heilsusamleg og þess vegna nauðsynlegt að loftræsting sé góð þar sem pússað er klukkustundum saman.

Vinnueftirlitið bannaði pússun, minni glanskröfur

Fyrir skömmu barst danska vinnueftirlitinu ábending um að ekki væri allt sem skyldi í skópússunarherbergjum lífvarðarins. Í framhaldi af því komu starfsmenn vinnueftirlitsins í heimsókn og staðfestu að loftræstingu væri stórlega ábótavant í pússunarherbergjunum. Yfirstjórn lífvarðarins bannaði í framhaldinu tvær tegundir skóáburðar sem lífvörðurinn hefur notað, annars vegar Kiwi og hinsvegar Saphir. Í tilkynningu yfirstjórnarinnar segir að um óákveðinn tíma þurfi ekki að glanspússa eins og tíðkast hefur en stígvélin skuli eigi að síður vera sómasamleg, ekki skítug og rykug eins og segir í tilkynningunni.

Talsmaður samtaka almennra hermanna (CS) sagðist í viðtali við danska útvarpið, DR, ekki búast við að loftræstingin í pússunarherbergjunum kæmist fljótlega í lag, hjá hernum gangi hlutirnir iðulega á hraða snigilsins.  

#glansinn #hverfur #stígvélunum


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26740/glansinn-hverfur-af-stigvelunum/

📰 Aðrar fréttir

Hafi nauðgað með­vitundar­lausri sambýliskonunni - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hafi nauðgað með­vitundar­lausri sambýliskonunni - Vísir
Þetta segir í ákæru á hendur manninum, sem gefin var út í júlí. Fyrirtaka verður í máli Héraðssaksóknara á hendur honum fyrir Héraðsdómi Suðurlands á ...
Unnur Lilja lýsir skelfilegu atviki í útskriftarferð FG – „Maður hugsar alltaf - Þetta gerist ekki við mig“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Unnur Lilja lýsir skelfilegu atviki í útskriftarferð FG – „Maður hugsar alltaf - Þetta gerist ekki við mig“
Unnur Lilja Andrésdóttir lýsir skelfilegri reynslu sem hún varð fyrir í útskriftarferð í Portúgal. Fimm menn króuðu hana af á skemmtistað.Unnur Lilja ...
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum Kjós­endur í Kali­forníu greiða atkvæði um fimm pró­senta skatt á hreina eign um 200 millj­arða­mær­inga. Be...
Smyrill í Norðurmýrinni
📅 21.10.2026 👁️ 0
Smyrill í Norðurmýrinni
Íbúar í Norðurmýri urðu varir við smyril í hverfinu í morgun. Ýr Jóhannsdóttir gekk fram á fuglinn á horni Gunnarsbrautar og Flókagötu á leið sinni ti...
At­vinnu­leysi dróst saman - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
At­vinnu­leysi dróst saman - Vísir
Þeim sem voru án atvinnu fækkaði milli mánaða en í ágúst mældist atvinnuleysi 6,8 prósent. Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,1 prósentust...
Masked boy guilty of trying to murder schoolgirl in Norfolk
📅 21.10.2026 👁️ 0
Masked boy guilty of trying to murder schoolgirl in Norfolk
The school went into lockdown and parents gathered at the gates as they waited for news about their children.
Töpuðu bar­daganum, lið­þjálfanum og prestinum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Töpuðu bar­daganum, lið­þjálfanum og prestinum - Vísir
Pistillinn birtist í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni „Opið bréf til óþekktra aðila“, tæpri viku eftir að Jón yfirgaf þingflokk Viðreisnar. Han...
Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það - Vísir
Garpur var skipað þeim hjónum Daða Frey og Árnýju Fjólu en í liði Þróttar mættu þau Hákon Jóhannesson og tónlistarkonan Bríet. Umræða skapaðist um íþr...
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum Fréttin21. október 2026Fréttatilkynning, InnlentLeave a Comment Ann...
Sænskur glæpa­foringi á­kærður fyrir þrjú morð - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Sænskur glæpa­foringi á­kærður fyrir þrjú morð - Vísir
Ildar „Örvar“ (e. Scar) Galiyev er meðal annars sagður bera ábyrgð á sprengjutilræði í Uppsölum sem varð 24 ára gamalli konu að bana, morði á átján ár...
Vill losna við blaða­menn og fá sund­laug í staðinn - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Vill losna við blaða­menn og fá sund­laug í staðinn - Vísir
Ekkert varð af því en samkvæmt heimildum blaðamanna New York Times hafði forsetinn lagt þetta nokkrum sinnum til á mánuðunum áður en hún lét af störfu...
Tíma­mót hjá Árna Má - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Tíma­mót hjá Árna Má - Vísir
Árni rak lengi vel Gallery Port sem lokaði í vor eftir áratug í rekstri. Hann ætlar að fagna þessum nýja kafla með pomp og prakt en vinnustofan er í H...
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps
📅 21.10.2026 👁️ 0
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps Fréttin21. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comm...
Gagnrýnir frumraun Kylie Jenner hjá Victoria’s Secret og fyrirtækið harðlega: „Hún er ekki með líkama fyrirsætu“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Gagnrýnir frumraun Kylie Jenner hjá Victoria’s Secret og fyrirtækið harðlega: „Hún er ekki með líkama fyrirsætu“
Adrianne Curry gagnrýndi Victoria’s Secret-tískusýninguna harðlega fyrir að fá Kylie Jenner til að koma fram á sýningunni á sunnudagskvöldið, og sagði...
Þórður Snær: stál, byrlun og leki
📅 21.10.2026 👁️ 1
Þórður Snær: stál, byrlun og leki
Þórður Snær: stál, byrlun og leki Fréttin21. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Þórður Snær Júlíusson. Páll Vilhjálmsson...
Mögnuð breyting á systrunum - Hafa misst samtals um 300 kíló
📅 21.10.2026 👁️ 0
Mögnuð breyting á systrunum - Hafa misst samtals um 300 kíló
Það er ótrúlegur munur á systrunum Amy og Tammy Slaton, en þeim hefur báðum tekist að léttast gífurlega og lifa heilsusamlegra lífi.Systurnar eru stjö...
Sí­fellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Sí­fellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman - Vísir
Norðurhjálp hefur það sem af er þessu ári afhent einstaklingum og fjölskyldum í fjárhagsvanda bónuskort til matarinnkaupa að verðmæti yfir tuttugu mil...
Lexíur og leikhúsið
📅 21.10.2026 👁️ 1
Lexíur og leikhúsið
Lexíur og leikhúsið Sigríður Jóns­dóttir skrifar um Högg eftir James Graham, sem sýnt er í Þjóð­leik­hús­inu. Högg er enskt verð­launa­leik­rit eftir ...
Mokað allan liðlangan daginn
📅 21.10.2026 👁️ 0
Mokað allan liðlangan daginn
Framkvæmdir við dýpkun í Hafnarfjarðarhöfn hafa staðið yfir frá í fyrravetur. Næsta sumar mun ný smábátahöfn líta dagsins ljós og breytir ásýnd hafnar...
Íbúðareigendur í Gufunesi verulega ósáttir - Áttu ekki von á nýju húsi svo nálægt sínu
📅 21.10.2026 👁️ 0
Íbúðareigendur í Gufunesi verulega ósáttir - Áttu ekki von á nýju húsi svo nálægt sínu
Eigendur íbúða í fjölbýlishúsinu að Jöfursbási 5b, í Gufunesi í Reykjavík, eru verulega ósáttir við byggingu nýs fjölbýlishúss á næstu lóð við þeirra ...
Starfsfólk Orkunnar dælir eldsneyti til styrktar Bleiku slaufunni
📅 21.10.2026 👁️ 0
Starfsfólk Orkunnar dælir eldsneyti til styrktar Bleiku slaufunni
Starfsfólk Orkunnar tekur þátt í Bleika deginum í dag, miðvikudaginn 21. október, þegar þau taka yfir eldsneytisdælurnar á Orkustöðinni við Dalveg mil...
Elliði svarar Jasminu: „Ég veit ekki til þess að þú hafir valdið neinum skaða“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Elliði svarar Jasminu: „Ég veit ekki til þess að þú hafir valdið neinum skaða“
Segja má að samfélagsmiðlar hafi logað eftir ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, í garð múslima. Í gærkvöldi steig Jasmina Vajzovic, fyrrve...
Framlengja gæsluvarðhald yfir fjórum sakborningum í stórum fíkniefnamálum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Framlengja gæsluvarðhald yfir fjórum sakborningum í stórum fíkniefnamálum
Landsréttur staðfesti á föstudag og mánudag þrjá úrskurði Héraðsdóms Reykjaness og einn úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir mönnum se...
Frakkar í vanda: Vextir hækka
📅 21.10.2026 👁️ 1
Frakkar í vanda: Vextir hækka
Frakkar í vanda: Vextir hækka Nið­ur­skurður í opin­berum útgjöldum er helsta kveikja mót­mæla Frakka, en ófriður eykur á vand­ann. Vaxta­á­lag á Frak...
Stephen Hubbard: Russia frees US citizen Stephen Hubbard, state media reports
📅 21.10.2026 👁️ 0
Stephen Hubbard: Russia frees US citizen Stephen Hubbard, state media reports
Stephen Hubbard has been taken to Pulkovo Airport, Putin said during talks with US envoy Steve Witkoff.
US citizen Stephen Hubbard freed by Russia and 'on his way home', Trumps says
📅 21.10.2026 👁️ 0
US citizen Stephen Hubbard freed by Russia and 'on his way home', Trumps says
The former teacher has been released without any "swap" required, according to the president.
Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal - Vísir
Unnur Lilja var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni um þessa árás. Hún segir algengt að það komi upp einhver atvik í fjölmennum útskriftarferðum og að fó...
Skoða áætlunar­siglingar milli Skot­lands og Ís­lands - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Skoða áætlunar­siglingar milli Skot­lands og Ís­lands - Vísir
Skoskir fjölmiðlar greina frá þessu og segja viðræður vera hafnar milli Múlaþings og hafnaryfirvalda í Aberdeen. Þá sé ónefnt fyrirtæki búið að sýna s...
UK weather: Amber warning issued by Met Office ahead of Storm Austen
📅 21.10.2026 👁️ 0
UK weather: Amber warning issued by Met Office ahead of Storm Austen
The deep area of low pressure is expected to move close to the south of the UK early on Friday with south-west England set to bear the brunt.
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvað vill unga fólkið okkar verða?
📅 21.10.2026 👁️ 0
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvað vill unga fólkið okkar verða?
Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. En hvaða fyrirmyndir býður þorpið upp á?Hverju myndi tíu ára barn svara ef við spyrðum það í dag: „Hvað langa...
Jón Gnarr lýsir töpuðum bardaga: „Það hefur því miður verið fátt um svör“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Jón Gnarr lýsir töpuðum bardaga: „Það hefur því miður verið fátt um svör“
Jón Gnarr segir að sig hafi skort stuðning í pólitískri baráttu sinni og að hann hafi jafnvel farið að efast um hvort nokkur raunveruleg áætlun væri t...
Telur allt ógirt land tekið eignar­námi með dómi - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Telur allt ógirt land tekið eignar­námi með dómi - Vísir
Landeigendurnir stefndu Fjarðabyggð og kröfðust þess að skaðabótaskylda sveitarfélagsins yrði viðurkennd. Töldu þeir að lög um afréttarmálefni og fjal...
Þingkonan missti báða fætur eftir á­rásina - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Þingkonan missti báða fætur eftir á­rásina - Vísir
Toyota Land Cruiser-jeppa var ekið á Helen Haines, óháðan þingmann á ástralska þinginu, í heimabæ hennar Wangaratta á mánudag. Vitni sögðu að ökumaður...
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum Vonin um að halda hlýnun undir 1,5 gráðum frá því fyrir iðn­bylt­ingu er „horfin“, segja Sam­ein­uðu ...
Hvalfjarðargöng lokuðust stutta stund vegna bilaðs bíls
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hvalfjarðargöng lokuðust stutta stund vegna bilaðs bíls
Hvalfjarðargöngum var lokað á níunda tímanum vegna bilaðs bíls í göngunum. Búið er að opna þau aftur Tilkynnt var um lokunina á vef Vegagerðarinnar kl...
Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus - Vísir
Danól og Bónus hefja hrekkjavökugleðina snemma í ár. Búið er að reisa sérstaka Haribo-kastala í tveimur verslunum Bónus, á Smáratorgi og í Miðhrauni. ...
Hval­fjarðar­göng opin á nýjan leik - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hval­fjarðar­göng opin á nýjan leik - Vísir
Lokað var fyrir umferð um Hvalfjarðargöng vegna bifreiðar sem bilaði í göngunum um klukkan átta í morgun. Klukkan 8.48 voru göngin opnuð að nýju.
Viðræður hafnar um ferju milli Seyðisfjarðar og Aberdeen
📅 21.10.2026 👁️ 1
Viðræður hafnar um ferju milli Seyðisfjarðar og Aberdeen
Til skoðunar er að koma á siglingum á milli borgarinnar Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarfélagið á í viðræðum við hafnaryfirvöld þar í la...
Bukangi: Huge crowds watch shark stranded in Busan, South Korea
📅 21.10.2026 👁️ 0
Bukangi: Huge crowds watch shark stranded in Busan, South Korea
A third attempt has been made to guide the 9ft 10in (3m) shark back to the open sea.
Hefur misst 90 kíló en það er einn hængur á
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hefur misst 90 kíló en það er einn hængur á
Bandaríski leikarinn John Goodman, sem er meðal annars þekktur fyrir leik sinn í Roseanne, The Big Lebowski og The Righteous Gemstones, hefur misst rú...
Opnar sig loksins um hvað réði úrslitum um flutninginn aftur til Bretlands
📅 21.10.2026 👁️ 0
Opnar sig loksins um hvað réði úrslitum um flutninginn aftur til Bretlands
Harry prins flutti aftur til Bretlands ásamt eiginkonu sinni, Meghan Markle, og börnum þeirra tveimur til að skapa „tækifæri fyrir fjölskylduna.“„Að g...
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack
📅 21.10.2026 👁️ 0
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack
Her alleged attacker, 43-year-old Brendan Nugent, faces multiple charges and appeared in court for the first time on Wednesday.
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack, husband says
📅 21.10.2026 👁️ 1
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack, husband says
Her alleged attacker, 43-year-old Brendan Nugent, faces multiple charges and appeared in court for the first time on Wednesday.
Man charged after Hackney attacks on three Jewish women
📅 21.10.2026 👁️ 1
Man charged after Hackney attacks on three Jewish women
The women suffered minor injuries when they were assaulted at Clapton Common, police say.
Missti báða fætur eftir árásina
📅 21.10.2026 👁️ 1
Missti báða fætur eftir árásina
Ástralskur þingmaður sem keyrt var á í fyrradag missti báða fætur. Læknar sem gerðu aðgerð á henni töldu nauðsynlegt að fjarlægja þá báða.Phil Haines,...
Missti báða fótleggi eftir árásina
📅 21.10.2026 👁️ 0
Missti báða fótleggi eftir árásina
Ástralskur þingmaður sem keyrt var á í fyrradag missti báða fótleggi. Læknar sem gerðu aðgerð á henni töldu nauðsynlegt að fjarlægja þá báða.Phil Hain...
Nýi sómalski þingmaðurinn í Svíþjóð er með stóran hala skulda og svika á eftir sér – Fær þingmannalaun þó hann tilkynni sig veikan og láti ekki ná í sig
📅 21.10.2026 👁️ 0
Nýi sómalski þingmaðurinn í Svíþjóð er með stóran hala skulda og svika á eftir sér – Fær þingmannalaun þó hann tilkynni sig veikan og láti ekki ná í sig
Mohamed Abdukardir Ali, nýkjörinn þingmaður sænska Vinstriflokksins, fær þingmannsgreiðslur þótt hann hafi enn ekki hafið störf á þinginu. Á sama tíma...
Animal rights group Peta asks Crystal Palace to retire bald eagle mascot
📅 21.10.2026 👁️ 0
Animal rights group Peta asks Crystal Palace to retire bald eagle mascot
Animal rights group Peta is urging Crystal Palace to retire their bald eagle mascot, saying a "bright stadium filled with boisterous fans is no place ...
Víða hálka á vegum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Víða hálka á vegum
Vegfarendur ættu að hafa varann á sér því víða er hálka eða snjóþekja á vegum úti. Einnig er hálka á vissum stöðum á höfuðborgarsvæðinu.Fram kemur á u...
Skafið og saltað - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Skafið og saltað - Vísir
Skil liggja yfir og við Austfirði sem rignir úr og líklega slydda til fjalla. Síðar í dag koma skilin lengra inn á land og fylgir þeim heldur svalara ...