Gjaldtaka hófst á miðnætti á veginum og nýju brúnni yfir Hornafjarðarfljót. Brúin var tekin í notkun 24. júní og hefur verið gjaldfrjálst að aka um hana síðan þá. Nú kostar 1500 krónur að aka yfir brúnna og er gjaldtakan sjálfvirk.
Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar þá eiga veggjöldin að: „ standa undir hluta kostnaðar við framkvæmdina, rekstur og viðhald vegarins.“
Vilja hafa gjaldtökuna eins einfalda og hægt er
Gjaldtakan fer fram í gegnum Spöl ehf, sem margir muna eftir úr Hvalfjarðargöngunum. Spölur sá um gjaldtöku þar. Í þetta sinn er hinsvegar gjaldtakan sjálfvirk. Númeraplötur bíla sem aka um brúnna eru myndaðar og reikningur sendur á eigendur bílana mánaðarlega.
„Vegfarendur þurfa ekki að skrá sig eða greiða sérstaklega þegar ekið er um veginn ... Reikningur fyrir ferðir hvers mánaðar er síðan sendur í heimabanka. Á spolur.is er hægt að nálgast yfirlit yfir notkun og upplýsingar um gjaldtökuna. Þar verður einnig hægt að greiða fyrir stakar ferðir,“ segir á vef Vegagerðarinnar.
Hámarksgjald á mánuði er 18.350
Samkvæmt gjaldskrá Spalar og Vegagerðarinnar er hægt að fá afsláttarkjör af magnferðum. Ef farartæki sem vegur minna en 3,5 tonn ekur 2-5 ferðir á mánuði kostar hver ferð 950 krónur og ef viðkomandi fer 6-22 ferðir kostar ferðin 750 krónur. Aldrei þarf að greiða meira en 18.350 krónur í mánuði.
Brúin um Hornafjarðarfljót er fyrsta samvinnuverkefnið sem Vegagerðin stendur að með nýju innviðafélagi sem stofnað var í júní, Göng og brú ofh. Brúin um Ölfusá er næsta verkefnið sem innviðafélagið stendur að en þau sjá einnig um rekstur Vaðlaheiðarganganna. Á vef Vegagerðarinnar segir að gert sé ráð fyrir að veggjöld standi straum af lágmarki 50% af kostnaði við brúna.
Ekki hefur enn verið gefið út hvað stök ferð mun kosta yfir nýja brú yfir Ölfusá mun kosta en kostnaður við það verkefni er metinn 18 milljarðar króna, samanborið við 10 milljarða sem brúin yfir Hornafjarðarfljót kostaði.
Stök ferð í Vaðlaheiðargöng kostar 2216 krónur.