Undirbúningur er hafinn að hinu árlega verkefni, Jól í skókassa, sem félagasamtökin KFUM og KFUK standa að baki. Um er að ræða alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir.
Gjafir verða sendar til barna í Úkraínu