Það hefur verið mikið rætt síðustu daga um notkun ungra karla á nærbuxum undir sundskýlu í sundlaugum landsins. Fjallaði Mbl um það nýverið að slíkt væri komið í tísku, þrátt fyrir að það væri yfirleitt tekið fram í einföldum leiðbeiningum til sundgesta. Ekki er til nein tölfræði yfir hversu margir hafa verið gripnir á brókinni ofan í laug og því kann það að vera handahófskennt hvort fólk kannist við að hafa séð einhvern stunda slíkt.
Gísli Rúnar Gylfason, forstöðumaður sundlauga Akureyrar, sagði í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun að hann hafi fyrst séð þetta fyrir um tveimur árum og hann hafi rætt þetta við kollega sína. „Þetta er landlægt vandamál, þessi tískubylgja,“ sagði Gísli Rúnar. Það hefur lengi verið vandamál að fá alla gesti til að þvo sér án fata en þetta sé nýtt. Mismunandi sé hvort nærbuxurnar séu undir sundskýlu eða stuttbuxum. „Það er mis hreint það sem er þarna undir, það er partur af vandamálinu,“ sagði hann. Það versta sé þegar einhver fer beint úr ræktinni og út í laug án þess að fara úr nærbuxunum.
Nú sé vandamálið daglegt brauð. „Kúnninn er mjög óvæginn. Við fáum alveg að heyra það. Við höfum verið kölluð öllum heimsins nöfnum inni í sturtunni.“ Þá eru dæmi um að menn hafi verið reknir upp úr lauginni fyrir að vera í brókinni undir skýlunni.
Gísli Rúnar er þó með lausn, það séu sundskýlur með streng þar sem sést í merkið: „Við erum alveg sátt við það ef menn eru í viðurkenndum sundfatnaði, þó að hann sé merktur flottu merki upp úr. Þá erum við algóð, á meðan þetta er allt hreint og fínt.“