Grískur maður að nafni Alexandros Katsanos, fæddur árið 1981, hefur verið ákærður fyrir að flytja inn til landsins feykilega mikið magn af kókaíni, eða tæplega 43 kg.
Óvenjulegt er að einn maður standi að svo miklum innflutningi fíkniefna en í stærstu kókaínmálum sögunnar á Íslandi hefur magn efna verið um 100 kg sem hafa verið flutt inn í samverknaði margra manna. Söluverðmæti efnanna sem hér eiga í hlut er yfir 800 milljónir króna.
Maðurinn flutti efnin hingað til lands með bíl sínum um borð í ferjunni Norrænu. Flutti hann efnin frá Danmörku með viðkomu í Færeyjum og síðan hingað til lands.
Lögregla lagði hald á fíkniefnin við leit undir fölsku gólfi í farmrými bílsins.
Krafist er upptöku á fíkniefnunum og bíl mannsins, sem og á síma hans.
Fyrirtaka verður í málinu við Héraðsdóm Austurlands þann 19. júní næstkomandi.