Donald Trump yngri gekk í hjónaband með Bettinu Anderson á laugardaginn á Bahamaeyjum en Donald Trump eldri, forseti Bandaríkjanna gat ekki verið viðstaddur vegna vinnu sinnar. Bahamaeyjar eru í uppáhaldi hjá parinu.
Brúðkaupið fór fram á einkaeyju sem tilheyrir Bahamaeyjum. Brúðkaupið var fámennt að því fram kemur á vef People. Á meðal gesta voru systkini Trumps yngri og makar. Fjölskylda Anderson og nokkrir vinir voru einnig á meðal gesta.
„Bettina og Don yngri gengu í hjónaband á æðislegum degi á stað sem þau heimsækja oft,“ sagði heimildarmaður.
Donald Trump yngri er elsti sonur Bandaríkjaforseta og fyrrverandi eiginkonu hans, Ivönu Trump. Hann er 48 ára en eiginkona hans er 39 ára. Trump yngri var kvæntur Vanessu Trump í 12 ár og á með henni fimm börn. Hún sótti um skilnað árið 2018. Árið 2024 fréttist af sambandi Trump yngri og Anderson.