Leikkonan Heather McComb gekk í hjónaband á dögunum þegar hún og leikarinn Scott Michael Campbell létu pússa sig saman. Þetta er annað hjónaband McComb sem var áður gift James Van Der Beek sem lést fyrr á árinu.
Nýgiftu hjónin staðfestu samband sitt árið 2024 en fyrir það höfðu þau verið vinir í 15 ár.
McComb greindi frá hjónabandi á samfélagsmiðlum sínum. Í tilkynningu sagði hún að þau Campbell hefðu verið umkringd fólkinu sem þau elskuðu mest í uppáhaldsborginni sinni sem er Missoula í Montana-ríki í Bandaríkjunum.
Skildu árið 2009
Hin 49 ára gamla McComb var gift Dawson's Creek-leikaranum á árunum 2003 til 2009. Eftir lát Van Der Beek í febrúar minntist hún hans þrátt fyrir skilnaðinn fyrir 17 árum. „Ég finn sérstaklega til með ótrúlegu eiginkonu hans Kimberly, fallegu börnunum hans og ótrúlegu fjölskyldu hans,“ skrifaði McComb.