Yfirvöld í Laos segjast hvorki geta skorið úr um sök né orsök dauðsfalla sex ferðamanna í landinu 2024, sem talin eru hafa verið vegna metanóleitrunar, því fjölskyldur þeirra hafi ekki gefið leyfi fyrir krufningu.
Tveir danskir ríkisborgarar, tveir Ástralir, Breti og Bandaríkjamaður létust eftir kvöldskemmtun í borginni Vang Vieng í nóvember 2024.
Í yfirlýsingu frá öryggisráðuneyti Laos, sem send var út í dag, segir að hingað til hafi yfirvöld engar sannanir fyrir því að dauðsföllin sé hægt að rekja til ákveðinna aðila eða ákveðinnar orsakar.
„Þetta er vegna þess að yfirvöld fengu ekki að framkvæma krufningu á líkum hinna látnu, og skorti því réttarlæknisfræðileg sönnunargögn sem nauðsynleg eru til að skera úr um dánarorsök,“ segir í yfirlýsingunni.
Þó segir að lyfjarannsóknarmiðstöð ráðuneytisins hafi fundið mikið magn metanóls í Tiger Vodka, og að málaferli gegn eiganda fyrirtækisins séu hafin.
Í yfirlýsingunni segir einnig að samkvæmt upplýsingum frá ástralska sendiráðinu í Laos og taílensku sjúkrahúsi hafi metanól greinst í blóði beggja áströlsku ferðamannanna sem létust.
Auk eiganda Tiger Vodka hefur eigandi farfuglaheimilisins þar sem bandaríski ferðamaðurinn dvaldi, og tíu starfsmenn þess, verið ákærðir fyrir eyðingu sönnunargagna eftir að þau fluttu lík hans á spítala.
Yfirvöld í Ástralíu hafa lýst miklum vonbrigðum með framgang málsins í Laos og hefur það valdið nokkurri spennu í samskiptum ríkjanna, að því er segir í frétt AFP af málinu.