Gervilýðræði

Gervilýðræði

Gervilýðræði

Gervilýðræði

Mið­flokk­ur­inn gref­ur und­an lög­mæti beins lýð­ræð­is og opn­ar nýj­an kafla í að­lög­un Ís­lands að trump­isma.

„Þetta er gerviskoðanakönnun,“ sagði Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, í viðtali við Ríkisútvarpið í vikunni um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný.

Þjóðaratkvæði án lögmætis?

Af orðum Sigríðar, sem hún ítrekaði í ýmsum útfærslum, varð ljóst að Miðflokkurinn ætlar ekki að virða niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu sem honum mislíkar.

Í hlaðvarpsþætti Miðflokksins daginn eftir gróf hún undan lögmæti beins lýðræðis á Íslandi almennt, þegar hún kallaði þjóðaratkvæði um stjórnarskrána 2012 fyrst „þjóðaratkvæði-skoðanakönnun“ og svo einfaldlega „skoðanakönnun“. Í þróuðustu útgáfu viðhorfs þingflokksformannsins, og fyrrverandi dómsmálaráðherra Íslands, var þjóðaratkvæðagreiðsla einfaldlega orðin „gerviskoðanakönnun“.

Þjóðaratkvæði vantraust á þjóðinni

Deilur Íslendinga um þjóðaratkvæðagreiðslur og viðbrögð stjórnmálamanna við þeim hafa oft afhjúpað litla skuldbindingu við lýðræðislegt gildismat, en líklega hefur aldrei verið gengið lengra á þessari öld í því að grafa undan lögmæti þeirra en nú með boðaðri afstöðu Miðflokksins.

Í jákvæðustu túlkun má segja að það sé lögfræðilega rétt, að Ísland sé þingræði og að þingmenn séu eingöngu bundnir sannfæringu sinni. En forsendur þess, utan þröngrar lagahyggju, er að þingmenn sitja eingöngu í umboði þjóðarinnar. Lagahyggjan hefur hins vegar verið ríkjandi hugmyndafræði, enda algengasti bakgrunnur þingmanna helsta valdaflokksins, Sjálfstæðisflokksins, lögfræðinám eins og það sem Sigríður Andersen hefur til að bera. Í blöndu af lagahyggju og skynsemishyggju Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, var niðurstaðan að þjóðaratkvæðið væri í raun vantraust gagnvart þjóðinni og ólýðræðislegt, eins og hann útskýrði í umræðum á Alþingi.

„Meirihlutinn hér treystir ekki þjóðinni. Hann treystir henni ekki fyrir upplýsingum, hann treystir henni ekki fyrir staðreyndum en umfram allt blasir við að þjóðinni er ekki treyst til að stjórna sér sjálf,“ sagði hann og vísaði þar til þess að vald myndi færast frá þjóðkjörnu Alþingi yfir til Evrópusambandsins. Þannig var flokkurinn hans, sem stóð einn á móti þjóðaratkvæðagreiðslu, í reynd að treysta þjóðinni með því og styðja lýðræðið.

Hunsun á þjóðarvilja hluti hefðar

Sigríður Andersen útskýrði á endanum að hunsun á niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslu væri orðin hluti af íslenskri stjórnmálahefð.

Sex þjóðaratkvæðagreiðslur voru haldnar vandræðalaust á 20. öld en á 21. öld hefur íslenskri stjórnmálastétt gengið erfiðlega að fylgja niðurstöðunum. 

Þegar Ólafur Ragnar Grímsson forseti vísaði fjölmiðlalögum í þjóðaratkvæði árið 2004, samkvæmt heimild í 26. grein stjórnarskrárinnar, brást ríkisstjórn Davíðs Oddssonar við með því að draga aftur frumvarpið og hindra að kosið yrði um það. 

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og stuðningsmenn hennar andmæltu því að rétt væri að þjóðin greiddi atkvæði um samning og skuldbindingar gagnvart erlendum ríkjum, en fylgdi niðurstöðum þjóðarinnar þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísaði Icesave í þjóðaratkvæði 2010.

Þjóðaratkvæðagreiðsla um breytingar á stjórnarskránni, sem kom í kjölfar vinnu þjóðkjörins stjórnlagaráðs, samkvæmt ferli sem stutt var þverpólitískt allt frá fyrstu árum sjálfstæðis Íslendinga, var haldin 2012. Niðurstöður hennar voru hunsaðar af Alþingi og stjórnvöldum.

Í vikunni sagði Sigríður Andersen að sú þjóðaratkvæðagreiðsla hefði verið „skoðanakönnun“, enda væri hún ekki lagalega bindandi. Þingmenn þurfi því ekki „að hlíta einhverjum þjóðarvilja“, enda hafi það ekki verið gert eftir stjórnarskrárkosningarnar.

Árið 2016 samþykkti breskur almenningur með 52% atkvæða gegn 48% að ganga úr Evrópusambandinu, gegn vilja ríkjandi forsætisráðherra, Davids Cameron, og Íhaldsflokks hans, sem hafði þó boðað hana. Atkvæðagreiðslan var ekki lagalega bindandi, en aldrei virðist hafa komið til greina að sniðganga niðurstöðurnar, þótt tæpar hafi verið. Þvert á móti aðlagaðist forsætisráðherrann niðurstöðunni og sagði af sér, frekar en að aðlaga þjóðina að sér. Þingmenn greiddu á endanum almennt atkvæði með því að framfylgja ákvörðun um að ganga úr Evrópusambandinu, þótt þeir væru sumir andsnúnir úrgöngunni. Á endanum vildu sumir flokkanna boða nýtt þjóðaratkvæði um úrgöngusamninginn sjálfan, en ekki kom til greina að hunsa niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu.

Beinn vilji þjóðarinnar í einu máli trompar þingræðið í venjulegu lýðræðisríki. En ekki samkvæmt íslenskri stjórnmálahefð, sem þjóðræknir íhaldsmenn hafa nú skilgreint.

Það er nefnilega líka orðin íslensk stjórnmálahefð að beygja reglur lýðræðisins þegar kemur að aðkomu þjóðarinnar að ákvörðun um aðild að Evrópusambandinu.

„Að sjálfsögðu þjóðaratkvæðagreiðsla“

„Ég hef alltaf gert ráð fyrir því að þessi atkvæðagreiðsla fari fram,“ sagði frambjóðandi fyrir alþingiskosningarnar 2013 um þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, sem hófust með þingsályktunartillögu 2009. „Ég held að það sé engin spurning að það þurfi að leyfa almenningi að koma að þessu.“ Síðan tók hann skýrt af skarið spurður í kosningaþætti. „Að sjálfsögðu kemur til þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Hann náði óvænt bestu kosningu allra.

Þessi frambjóðandi var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þá formaður Framsóknarflokksins, sem hafði raunar áður krafist gerðar nýrrar stjórnarskrár með stjórnlagaþingi, en síðan snúist gegn því og niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslu um það mál.

„Þetta mál lýtur ekkert að vilja þjóðarinnar

Eftir að hann var kjörinn 2013 hætti hann að vilja þjóðaratkvæðagreiðsluna sem hann sagði að yrði auðvitað. Hann myndaði ríkisstjórn með flokki sem hafði einróma lofað þjóðaratkvæðagreiðslu.

„Í Evrópusambandsmálinu þá munum við standa við það sem við höfum ályktað um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla,“ sagði Bjarni Benediktsson, nú formaður Samtaka atvinnulífsins en þá formaður Sjálfstæðisflokksins, í kosningabaráttunni. „Við munum standa við það að hlusta eftir því sem fólkið í landinu vill.“

Þeir mátu sem svo að þjóðaratkvæðið sem þeir lofuðu fyrir kosningar væri „pólitískur ómöguleiki“ vegna þess að þeir væru í reynd á móti annarri niðurstöðunni.

Þar sem gjaldmiðlamálið var eitt stærsta viðfangsefni kosninganna 2013 er líklegt að þessi loforð Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafi skipt miklu máli í að tryggja þeim kjör og völd.

Í stjórnarsáttmála var útfærslan sú að það yrði ekki haldið áfram með viðræðurnar nema haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla. En hún var ekki haldin. Ráðherra úr flokki Sigmundar Davíðs sleit viðræðunum með bréfi frá sér til ESB.

„Þú lætur eins og þjóðin ráði þessu,“ sagði Sigríður Andersen í Kastljósinu í vikunni.

„Þetta mál lýtur ekkert að vilja þjóðarinnar,“ hafði hún sagt á þingi.

En þessi sjálfsörugga einlægni í viðhorfi gagnvart lýðræðinu berst, eins og svo margt, með suðvestanáttinni.

Hvaðan kemur þetta?

Endurskilgreining Miðflokksmanna á lykilhugtökum lýðræðisins á sér stað í miðjum stakkaskiptum valdsins í heiminum. 

Þegar verðandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi grínaðist með að yfirtaka og innlima Ísland, og gerast landstjóri, stökk varaformaður Miðflokksins honum til varnar og skaut að þeim sem gagnrýndu vanvirðingu við fullveldi Íslands.

Þegar Bandaríkin bisuðu við að innlima Grænland með valdi, steig sama Sigríður Andersen fram og sagði það ekki eiga að „koma svona mikið á óvart“ og að „Ísland stendur nú sem betur fer utan við þetta þref allt saman“.

Miðflokkurinn hefur þannig nú þegar valið að verja ekki fullveldi ríkja gegn yfirgangi, ekki einu sinni okkar eigin lands.

Nú bætist við viðhorf gagnvart lýðræðinu. Miðflokkurinn, sem gagnrýnir lýðræðishalla í Evrópusambandinu, telur sig ekki aðeins óbundinn því hvernig almenningur kýs í þjóðaratkvæðagreiðslu, grefur undan lögmæti þjóðaratkvæðagreiðslu sem slíkrar.

Sú atkvæðagreiðsla snertir líka öryggi landsmanna. Það er líklegt að aðild að Evrópusambandinu muni skipta máli ef kemur til þess að verjast yfirgangi trumpismans, sem berst að ströndum, og skapa samstöðu með öðrum lýðræðisþjóðum andspænis uppgangi einræðisafla í heiminum.

Kostir, gallar og prinsipp

Aðild að Evrópusambandinu hefur kosti og galla og óljóst er hversu mikla lausn hún færir okkur í glímunni við óstöðugleika og okur í vöxtum og verðlagi, sem snerta þó beint grunnþarfir allra sem ekki eru sterkefnuð. Rök eru með og á móti, en hafið er yfir vafa að vaxtastig á Íslandi er tvisvar til þrisvar sinnum hærra en í viðmiðunarlöndum í Evrópu og verðlag er hæst, þótt laun séu líka hærri en víðast. Atvinnuleysi er svipað og hagvöxtur á mann er lægri á Íslandi síðustu ár en í ESB.

Sumar þjóðir eru mjög ánægðar með aðildina, eins og Svíar sem lýsa 79% ánægju, og aðrar minna ánægðar, eins og Frakkar með 52% ánægju, samkvæmt PEW research.

Alls eru 43% íbúa í ESB-ríkjum jákvæð gagnvart sambandinu, 38% hlutlaus og 18% neikvæð, samkvæmt Eurobarometer. Af ríkjum sem hafa evruna eru 83% almennings fylgjandi henni, en 14% andvíg. Stuðningur við evruna hefur aldrei verið meiri.

Langflestir, eða 72%, telja landið sitt hafa hagnast á aðild að ESB. Þar af segjast 93% Íra hafa hagnast af aðild, en 5% ekki. Í ESB mælast 57% ánægð með virkni lýðræðisins í sambandinu en 37% ekki. Yfirgnæfandi meirihluti íbúanna, eða 81%, vilja sameiginlega varnarstefnu sambandsins.

En kannski skipta þessar skoðanakannanir engu máli? Virðing fyrir lýðræði á Íslandi er hins vegar stærra þjóðfélagsmál heldur en nánari samvinna við Evrópu.

Þau sem snúa upp á og vanvirða lýðræðið í nafni þess að of lítið lýðræði sé í Evrópusambandsríkjum, og halla sér upp að einræðissinnuðum Bandaríkjaforseta sem hótar nágrönnum okkar innlimun, eru ekki eingöngu leiðarljós frá mögulegri inngöngu í Evrópusambandið, heldur í átt að öðrum valkosti, sem þau vilja að sé sá eini í boði fyrir almenning, enda sé beint lýðræði pólitískur ómöguleiki. Hvað hann felur í sér leiðir tíminn í ljós, en vonandi leikur lánið við okkur.

#gervilýðræði


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26733/gervilydraedi/

📰 Aðrar fréttir

Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
📅 22.10.2026 👁️ 2
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin22. október 2026InnlentLeave a Comment Hákon Jóh...
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
📅 22.10.2026 👁️ 2
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri þáttaröð hinna vinsælu sjónvarpsþátta The White Lotus, hefur verið ráðinn í aðalhlutverk ný...
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
📅 22.10.2026 👁️ 2
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
A five-year-old girl and two adults were taken to hospital after two cars collided on the TF-1 near Las Chafiras in southern Tenerife this morning (Th...
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
📅 22.10.2026 👁️ 2
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
Lögmaðurinn og samfélagsrýnirinn Arnar Þór Jónsson fékk martröð í nótt sem hann óttast að verði að veruleika. Í færslu í hópnum Ísland – Þvert á flokk...
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
📅 22.10.2026 👁️ 3
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segir fangelsið á Hólmsheiði vera mannfjandsamlega byggingu og er hann ekki bjartsýnn á að nýtt öryggisfangelsi sem...
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
Vinna við farþegasalinn við Þönglabakka er þegar hafin og á að ljúka 5. desember. Framkvæmdir við stöðina utandyra gætu hafist vorið 2027, en sú tímas...
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
📅 22.10.2026 👁️ 2
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Commen...
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu Fréttin22. október 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar:...
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en hundruð íslenskra vefsíðna voru útsettar fyrir gallanum og lágu margir vefir niðri á tímabili í...
Óléttur karl ætti að fá Nóbelsverðlaunin
📅 22.10.2026 👁️ 2
Óléttur karl ætti að fá Nóbelsverðlaunin
Drenglyndi hópur foreldra og kennara hefur vakið athygli á upplýsingaóreiðunni sem fylgir því þegar fjölmiðlar segja frá ,,óléttum karlmanni.“ Dv Kvör...
Sparkaði upp herbergishurð og tók sambýliskonuna kyrkingartaki
📅 22.10.2026 👁️ 2
Sparkaði upp herbergishurð og tók sambýliskonuna kyrkingartaki
Dómari við Héraðsdóm Vesturlands dæmdi karlmann á mánudag til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar. Hann var að auki dæmdur til að greiða sambýliskonu...
Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fanga­klefa - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fanga­klefa - Vísir
Þann 6. október kvartaði kvenkyns fangi vegna aðbúnaðar síns í Fangelsinu Hólmsheiði en hún hafði frá upphafi afplánunar sinnar verið vistuð í myndavé...
Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi - Vísir
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í gær að efsta hæð bílahússins við Bergstaðastræti verði opnuð sem P1-gjaldsvæði. Miðhæð hússins er þegar rekin m...
Olíuverð hækkar – nálgast hápunktinn á þessu ári
📅 22.10.2026 👁️ 2
Olíuverð hækkar – nálgast hápunktinn á þessu ári
Enn bólar ekkert á friði milli Bandaríkjanna og Írans. Heimsmarkaðsverð hráolíu er komið í 112,55 dollara á tunnu, sem er nálægt hápunktinum á þessu á...
Moment man rescued from sinking car by Australian TV reporter
📅 22.10.2026 👁️ 2
Moment man rescued from sinking car by Australian TV reporter
Journalist Will Murray describes how he and a bystander saved an SUV driver from his vehicle.
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að eldflaugarnar hafi lent í nokkrum hverfum Kænugarðs og valdið þar skaða á íbúðarhúsnæði, orkuinnviðum og...
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og nú þingmaður utan flokka, greindi frá því í ræðustól Alþingis í gær að hann hefði nýlega greinst m...
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
📅 22.10.2026 👁️ 3
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
Konur á aldrinum 23-64 ára fá boð í leghálsskimun með reglubundnum hætti. Konur sem fara reglulega í skimun fyrir leghálskrabbameini eru í minni hættu...
Russell Brand accuser said alleged rape 'really hurt', court hears
📅 22.10.2026 👁️ 2
Russell Brand accuser said alleged rape 'really hurt', court hears
The friend of a woman claiming to have been raped by Russell Brand says she said he was "quite aggressive".
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
Margir sem komnir eru á miðjan aldur og yfir muna eftir bláum Ópal. Í september árið 2005 tilkynnti Nói Siríus að framleiðslu hans yrði hætt. Skýringi...
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri styrkumsókn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, til fjárlaganefndar. Akademían segir hækkandi kostnað og minn...
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
Guðmundur greindi frá málinu í ræðustól Alþingis í gær. Ræðuna hélt hann í tilefni af bleika deginum sem fór fram í gær. Hann segir mikilvægt að samfé...
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
📅 22.10.2026 👁️ 3
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. Illa gekk að sækja hringinn sem barði...
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 3
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
A big show, concert or comedy night can leave you feeling pleasantly full of noise, colour and conversation, but not quite ready to call it a night. T...
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
📅 22.10.2026 👁️ 3
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
Íslenskur kona sem hefur búið í Frakklandi í nær 20 ár segir ekki hafa komið á óvart þegar mótmælin, sem hafa verið í landinu síðustu vikur, hófust. H...
Retired Woking decorator's Pokémon cards sell for £1.5m
📅 22.10.2026 👁️ 2
Retired Woking decorator's Pokémon cards sell for £1.5m
He says he found treasure in his attic where the collection had been stored for 15 years.
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
„Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur ...
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
📅 22.10.2026 👁️ 3
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
The Met Office have named a new storm, Boelo, which is set to bring another round of stormy weather to the UK over the weekend.
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Morgunblaðið greinir frá niðurstöðunni. Málið varðaði upplýsingar sem var að fin...
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
📅 22.10.2026 👁️ 4
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV og fleiri fjölmiðla af óeirðunum í Frakklandi. Hann sakar s...
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lætur neikvæðar umsagnir skólasamfélagsins um innleiðingu nýs einkunnakvarða í grunnskólum ekkert á sig fá....
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
„Uppsagnarhrinunni er ekki lokið,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi um uppsagnir s...
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
📅 22.10.2026 👁️ 4
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Seðlabankanum í vil í miskabótamáli sem Þorsteinn Már Baldvinsson höfðaði gegn bankanum.Dómurinn var kveðinn upp í morgu...
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
📅 22.10.2026 👁️ 3
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
New South Wales Police say inquiries took place "following a report of inappropriate content being shared".
Uppgötvuðu augnalausan snigil
📅 22.10.2026 👁️ 4
Uppgötvuðu augnalausan snigil
Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta tegund ferskvatnssnigils í helli í Kína.Snigillinn, sem hefur fengið fræðiheitið Erhaia dijiang, hefur aðlagas...
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þangað var hann mættur til að ræða hagræðingu í Reykjavík, sem bróðir hans Róbe...
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
📅 22.10.2026 👁️ 4
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
The influential studio that made Mass Effect and Dragon Age announces it is closing its doors.
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að setja verði mikinn fyrirvara við yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stríðslok í Úk...
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 4
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag að vísa til borgarráðs tillögu Samfylkingarinnar um að vinna heildstæða úttekt á mögulegum áhrifum af notkun gervig...
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
📅 22.10.2026 👁️ 4
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
Systir Matthew Perry greinir frá nýjum, hjartnæmum upplýsingum um einkajarðarför hans.Mary Robertson, leikstjóri Netflix-heimildarmyndarinnar The One ...
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
📅 22.10.2026 👁️ 4
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
Marta María Winkel, umsjónarmaður Smartlands, segir að eftir skrif hennar um sundferð þingmannanna fimm í Selárlaug nýverið hafi tölvupóstum rignt yfi...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
📅 22.10.2026 👁️ 4
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
Félagið Aurora Abalone (Sæbýli hf.) hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu til uppbyggingar 100 tonna árlegrar framleiðslu.Í fréttatilkynni...
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
Hin breska Dench er orðin 91 árs gömul og er ein dáðasta leikkona Bretlands, ef ekki heimsins. Hún hóf leikferilinn á sviði en færði sig svo yfir í kv...
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
📅 22.10.2026 👁️ 4
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
Hættuástand vegna öryggisgalla í PHP-forritunarmálinu er ekki yfirstaðið að mati sérfræðings hjá CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda. Bjark...
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
📅 22.10.2026 👁️ 4
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
The bank says it is using more AI leading to a 5% reduction in its workforce.
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
Prígósjín-veldið hefur minnkað nokkuð, þar sem stór hluti þess hefur endað í höndum varnarmálaráðuneytis Rússlands en Pavel er enn mjög umsvifamikill ...
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um einstakling í bifreið sem sagður var hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla. Lögreglumenn fór...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
📅 22.10.2026 👁️ 4
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Ástleysið er sárt
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ástleysið er sárt
Ástleysið er sárt Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og...