Vesturverk vinnur að nýju umhverfismati fyrir Hvalárvirkjun á Ströndum. Talsmaður segir að ef allt gengur að óskum geti framkvæmdir hafist 2028 og virkjunin skilað orku inn á kerfið 2031.
„Staðan er sú að við erum að vinna að því að klára undirbúning virkjunarframkvæmdanna og þar er endurgerð umhverfismatsins efst á blaði,“ segir Birna Lárusdottir, upplýsingafulltrúi HS Orku.
Umhverfissamtök kærðu framkvæmdaleyfið þar sem þau töldu annmarka á umhverfismatinu og úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi framkvæmdaleyfi Árneshrepps úr gildi í vor. Úrskurðarnefndin taldi verulega annmarka á áliti Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdaraðila. Matsskýrslan sjálf hafi verið haldin slíkum annmörkum að hún væri ekki fullnægjandi grundvöllur til töku ákvörðunar um framkvæmdina. Vesturverk vinnur nú að nýju umhverfismati.
Samhliða vinnu við umhverfismat vinnur Vesturverk að skipulagsmálum. Breyta þarf aðalskipulagi Árneshrepps vegna jarðstrengs og efnistöku fyrir framkvæmdina.
Binda vonir við breytingar á sjö milljarða kerfisframlagi
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra boðaði í vor breytingar á kerfisframlagi sem gætu létt á kostnaði orkufyrirtækja við að tengjast flutningskerfinu.
„Það myndi í rauninni breyta mjög miklu fyrir framkvæmdina. Kostnaðurinn vegna kerfisframlagsins, upphafskostnaðurinn við verkefnið, er mjög hár,“ segir Birna. Vesturverk bindur vonir við að breytingar sem ráðherra sagðist ætla að kynna á haustþingi, gætu orðið til þess að fyrirtækið þurfi ekki að greiða þá sjö milljarða sem gert er ráð fyrir að það kosti að tengja Hvalárvirkjun við flutningskerfi raforku.
Áður en framkvæmdir geta hafist þarf líka að efla vegi og brýr svo innviðir beri flutning á þungum búnaði. Þá þurfa vegirnir að vera færir allan ársins hring.
Birna segir Vesturverk hafa átt í góðu samtali við Vegagerðina varðandi það sem þarf að gera. „Við höfum lagt til að taka þátt í einhverjum flýtiaðgerðum því tengdu en það er of snemmt að segja til um.“