Í gær gengu hundruð manns fylktu liði í borginni Uruapan í Mexíkó til að minnast borgarstjórans Carlos Manzo sem var myrtur í fyrra meðan hann tók þátt í hátíðarhöldum á degi hinna dauðu.
Manzo barðist ötullega gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í héraði sínu, Michoacán. Hann var mjög sýnilegur á samfélagsmiðlum, fór í eftirlitsferðir með lögreglumönnum og var viðstaddur handtökur.
Vegna þessa óttuðust margir að hann yrði ekki langlífur. Á endanum fór það svo að sautján ára amfetamínfíkill var gerður út af glæpagenginu CJNG til að skjóta Manzo til bana.
Hann stóð mitt í mannþröng sem var saman komin til að halda dag hinna dauðu hátíðlegan þegar ráðist var að honum. Ungi amfetamínfíkillinn var skotinn á staðnum af lífvörðum Manzos.
Gengu að torginu þar sem hann lést
Morðið vakti mikla reiði í Mexíkó og þess var krafist að málið yrði kannað ofan í kjölinn. Rannsókn á dauða Manzo leiddi á endanum til þess að fleiri en þrjátíu voru handteknir, þar á meðal velferðarráðherra héraðsins, Rosa Alejandra Vargas. Hún er sögð skyld nokkrum þeirra sem voru handteknir.
Fólkið sem minntist Manzos í gær gekk að torginu Plaza Morelos. Þar var stytta af honum í raunstærð afhjúpuð í minningu hans en hún stendur nákvæmlega á þeim stað þar sem hann lést.