Gengu gegn spillingu íslenskrar náttúru
Fjöldi fólks kom saman í miðborg Reykjavíkur í dag í kröfugöngu til varnar óspilltrar náttúru á Íslandi. Gangan var skipulögð af breiðum hópi náttúruverndarsinna- og samtaka. Áætlaður fjöldi fólk á svæðinu var á þriðja þúsund.
Göngufólkið telur að íslensk náttúra þarfnist varna, því „hún á undir högg að sækja og hún þarf fleiri raddir,“ eins og sagði í boðun Landverndar.
Gengið var frá Arnarhóli niður í Hljómskálagarðinn.
Þar hélt Guðmundur Þórður Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í handbolta, ræðu. Síðan steig skemmtikrafturinn og fréttamaðurinn fyrrverandi, Ómar Ragnarsson, á stokk í fyrsta sinn í langa tíð.
Í upplestri á kröfugerð fundarins var fyrst vitnað til orða Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta. „Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir.“