Kínverskur ferðamaður var handtekinn á Suvarnabhumi-alþjóðaflugvellinum í Bangkok eftir að hafa gengið berserksgang við sjálfvirk vegabréfahlið.
Maðurinn, Zheng Liwei, var á leið í gegnum vegabréfaeftirlit á dögunum þegar hann reyndi ítrekað að skanna brottfararspjaldið sitt í stað vegabréfsins.
Þegar hliðið opnaðist ekki missti hann stjórn á skapi sínu.
Á myndskeiði sem hefur farið í dreifingu má sjá Zheng, sem er 30 ára, slá í hliðið og sparka því síðan upp að hluta.
Þegar hann fékk sömu villuboð við annað hlið sparkaði hann upp glerhurðunum og gekk í gegn, áður en öryggisverðir yfirbuguðu hann.
Missti af fluginu
Samkvæmt yfirvöldum reyndi Zheng einnig að ráðast að starfsfólki útlendingaeftirlitsins. Hann var handtekinn á staðnum og missti af fluginu sínu.
Zheng hefur verið ákærður fyrir eignaspjöll sem geta varðað allt að þriggja ára fangelsi. Þá þurfti hann að greiða um 13.777 Bandaríkjadali vegna skemmda á hliðinu, sem í íslenskum krónum er um 1,8 milljónir króna.
Hann var einnig kærður fyrir að móðga opinbera starfsmenn við störf. Slíkt getur varðað allt að eins árs fangelsi.
Á yfir höfði sér lífstíðarbann frá landinu
Yfirvöld í Taílandi hafa jafnframt afturkallað vegabréfsáritun Zhengs. Honum verður vísað úr landi þegar málsmeðferð lýkur og á yfir höfði sér lífstíðarbann frá landinu.
„Taíland tekur vel á móti ferðamönnum af öllum þjóðernum sem sýna taílensku þjóðinni og landinu virðingu,“ sagði Panumas Bunyalak, yfirmaður útlendingaeftirlitsins í Taílandi.
Hann bætti við að hegðun sem bryti gegn lögum eða grundvallarreglum um almennt velsæmi gæti leitt til afturköllunar á vegabréfsáritun og brottvísunar.