Rannsóknarnefnd samgönguslysa gat ekki komist að orsök þess hvers vegna 65 ára maður missti meðvitund við hópköfun í Silfru á Þingvöllum sumarið 2024. Nefndinni var ekki tilkynnt um slysið heldur frétti hún af því í fjölmiðlum. Það tók lögreglu sextán daga að svara upplýsingabeiðni nefndarinnar. Þá var kafarinn farinn af landi brott.
Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa sem var birt í gær.
Þrír kafarar voru með leiðsögumanni, 46, 65 og 74 ára. Elsti kafarinn fór tvisvar upp á yfirborðið vegna þreytu og var hugað að honum. Síðan uppgötvaðist að næstelsti kafarinn lá hreyfingarlaus við grjót á botni lónsins.
Leiðsögukafarinn flýtti sér niður að kafaranum og kom honum upp á yfirborðið. Fólk sem var við yfirborðsköfun í Silfru synti til þeirra og aðstoðaði við að koma meðvitundarlausum kafaranum í land.
Rannsókn leiddi í ljós að köfunarfyrirtækið var með gild leyfi og farið var eftir skilyrðum þess um að þrír mættu kafa með einum leiðsögukennara. Einnig var fylgt kröfu um að kafarar yfir sextugu skiluðu inn læknisvottorði.
Rannsóknarnefnd leitaði álits Landhelgisgæslunnar sem sagði alvarlegt ef skjólstæðingur væri skilinn eftir á dýpi án þess að stöðugt eftirlit væri með honum eða honum veitt skýr fyrirmæli um að fara upp á yfirborðið.
Rannsóknarnefndin skoðaði köfunarbúnað kafarans sem missti meðvitund. Hún gat ekki kynnt sér gögn úr köfunartölvu því þau voru ekki lengur til þegar þeirra var óskað.
Gögnin sem nefndin fékk að lokum frá lögreglu voru ekki nægilega tæmandi til að rannsaka slysið ítarlega. Þar sem nefndinni var ekki tilkynnt um slysið gat hún ekki rannsakað vettvanginn og aflað gagna þar.
Köfunarfyrirtækið tilkynnti slysið til lögreglu, Samgöngustofu, Ferðamálastofu, tryggingafélags síns og Sjúkratrygginga Íslands auk þess sem Þjóðgarðurinn á Þingvöllum var upplýstur.
Rannsóknarnefnd beindi þeirri tillögu til innviðaráðuneytisins að það semdi eða breytti reglugerð þannig að upplýsa verði nefndina um köfunarslys. Fyrirtækið var hvatt til að láta köfunarformann halda köfunardagbók í samræmi við viðauka við reglugerð.