Stjarnan er komin á beinu brautina á nýjan leik í Bestu deild karla í fótbolta eftir sigur gegn Þór frá Akureyri í 9. umferð deildarinnar á Þórsvelli á Akureyri í dag.
Leiknum lauk með endurkomusigri Stjörnunnar, 3:1, en Ágúst Eðvald Hlynsson kom Þórsurum yfir strax á 8. mínútu.
Stjarnan er með tíu stig í níunda sætinu en liðið hafði ekki unnið deildarleik frá 17. apríl fyrir leik dagsins. Garðbæingar höfðu aðeins fengið eitt stig af 21 mögulegum en þetta var þriðji sigur þeirra í sumar.
Þórsarar í frjálsu falli
Þórsarar eru í frjálsu falli í deildinni en þeir eru með sex stig í tíunda sætinu og hafa nú tapað sex leikjum í röð en einu sigrar liðsins komu í fyrstu og þriðju umferð deildarinnar í apríl.
Garðbæingar sneru leiknum sér í vil í síðari hálfleik þar sem Daníel Finns Matthíasson jafnaði metin á 51. mínútu áður en Emil Atlason kom Garðbæingum yfir á 63. mínútu.
Haukur Örn Brink innsiglaði svo sigur Stjörnumanna með marki í uppbótartíma og þar við sat.