Katie Zacharia, nýr fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, átti ekki draumabyrjun í starfi þegar hún hélt sinn fyrsta blaðamannafund í gær.
Zacharia, sem tekur við af Karoline Leavitt, svaraði aðeins þremur blaðamönnum á fundinum í gær og lauk honum töluvert fyrr en venjan er eða eftir aðeins um stundarfjórðung.
Þá þóttu upphafsorð hennar heldur ósannfærandi, svo vægt sé til orða tekið. Hún tafsaði og leit vart upp af blaði þegar hún ræddi yfirstandandi kosningafundaröð Trumps forseta og kynnti næstu áfangastaði.
Þegar hún svo ruglaðist á Donald Trump og eiginmanni sínum uppskar hún kurteislegan hlátur frá þeim skara fréttamanna sem saman var kominn í Hvíta húsinu. Einhverjir hafa væntanlega fengið örlítinn kjánahroll yfir þessari fyrstu atrennu Zacharia í nýju starfi.
The Guardian tók saman vandræðalegustu augnablikin af fundinum.
Hver kannast ekki við það að vera eilítið stressaður á sínum fyrsta degi í nýrri vinnu? Ef til vill þarf að leyfa Zacharia að njóta vafans.
Eins og fréttamaður BBC sem sat fundinn reifar þótti þó sérkennilegt að hún hefði viðstöddum tækifæri til að spyrja út í þau mál sem mest brenna á blaðamönnum nú um stundir: Meint vopnahlé Trumps í Úkraínu sem enginn fótur virtist fyrir eða samningur forsetans um dísilkaup frá Rússlandi.
Henni tókst þó að greina frá því að Kimberly Guilfoyle, sendiherra Bandaríkjanna í Grikklandi, hefði verið kölluð heim eftir að í ljós kom að hún hefði þegið fé frá styrktaraðila Trumps til þess að greiða af persónulegum reikningum.