Helgi Laxdal, fyrrverandi frambjóðandi Pírata til Alþingis, hefur lagt til að stofnaður verði Antifa hópur á Íslandi. Hann vill mynda mótvægi við þá sem hann kallar fasista og safna fjölmennum hópi til að mæta á gagnmótmæli.
Tillöguna leggur Helgi fram í færslu í Facebook hópnum „Afhjúpum kvenfyrirlitningu, rasisma og almennt hatur á samfélagsmiðlum“. Helgi hefur jafnframt viðhaft harkalegt orðalag í umræðum á netinu. Á skjáskotum sem Nútíminn hefur undir höndum sést hann meðal annars tala um að „þurrka þá út með ÖLLUM ráðum“ og að stöðva Skjöld Íslands með lögbrotum og banvænu ofbeldi ef þörf krefði.
Vill sameiginlegan vettvang andfasista
„Er ekki kominn tími til að stofna ANTIFA á Íslandi?“ spyr Helgi í færslunni.
Hann tekur fram að allir sem séu andvígir fasisma séu tæknilega séð Antifa. Hann velti hins vegar fyrir sér hvort þörf sé á sameiginlegum vettvangi.
„Ég er bara að hugsa hvort það þurfi ekki fókuspunkt og mótvægi við orðræðu fasista og fylgidjófla þeirra, svo þeir eigni sér ekki umræðuna með taumlausu bulli.“
Helgi segir einnig geta verið gott að hafa fjölmennan hóp tilbúinn til að mæta á gagnmótmæli. Með því mætti sýna að þeir sem hann nefnir „fasistadjöfla“ séu í yfirgnæfandi minnihluta og séu jafnframt „heiglar og rolur“.

„Þurrka þá út“
Á einu skjáskotanna svarar Helgi öðrum Facebook notanda og segist ekki hafa áhuga á að fá harðlínumenn til að skipta um skoðun:
„Ég hef engan áhuga á að reyna að snúa harðlínumönnum í þessum málum, heldur að þurrka þá út með ÖLLUM ráðum, sama hvaða lagalegu stoði þau ráð hafa.“

Talaði um banvænt ofbeldi gegn Skildi Íslands
Annað skjáskot sýnir ummæli Helga í umræðu í kjölfar frétta um Skjöld Íslands, hópinn sem vakti athygli fyrir göngur um miðborg Reykjavíkur.
Þar skrifaði Helgi:
„Þetta verður að stoppa strax.
Með lögbrotum og banvænu ofbeldi ef með þarf
Því að þetta er bara fyrsta skrefið hjá þeim…“

Var frambjóðandi og gjaldkeri hjá Pírötum
Helgi skipaði þriðja sæti á lista Pírata í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningunum 2013 og sjötta sæti í kosningunum 2016.
Samkvæmt tilkynningu Pírata á Norð usturlandi var hann jafnframt kjörinn gjaldkeri félagsins á aðalfundi í mars 2016.
Vill ekki ræða við Nútímann
Nútíminn leitaði eftir viðbrögðum Helga og spurði hvort færslan væri eftir hann. Jafnframt var honum boðið að útskýra hvað það væri sem hann vildi sjá sjá Antifa koma í verk á Íslandi og hvers vegna hann teldi þörf á slíkum hópi.
Helgi svaraði ekki spurningunum og hafnaði því að ræða við miðilinn:
„Takk en nei takk, ég vil ekki tala við Nútímann né nokkurn þaðann.“