Hugbúnaðarverkfræðingur og sérfræðingur í gervigreind sem áður starfaði hjá Google og Microsoft er svo sannfærður um að yfir helmingslíkur séu á því að gervigreind útrými mannkyninu á næstu 10 árum að hann er hættur að safna í lífeyrissparnað.Umræddur maður heitir Nate Soares og hann ræðir þessa sýn sína á gervigreind í hlaðvarpsþættinum The Most Interesting Thing in AI, sem stýrt er Nicholas Thompson framkvæmdastjóra bandaríska tímaritsins The Atlantic.Sérsvið Soares er gervigreind og í störfum sínum hjá Google vann hann töluvert við rannsóknir og þróun á henni.
Fyrrum hugbúnaðarverkfræðingur hjá Google og Microsoft hættur að safna í lífeyrissparnað - Segir meira en helmingslíkur á útrýmingu mannkyns innan áratugar