Sveitarstjórinn í Þingeyjarsveit, Katrín Sigurjónsdóttir, er eigandi fyrirtækis sem selur Samherja skreiðarpoka og þurrkgrindur fyrir skreiðarþurrkun útgerðarfyrirtækisins á Laugum í sveitarfélaginu. Fiskþurrkun Samherja er stærsti einkarekni atvinnurekandinn á Laugum með um 20 starfsmenn.
Það er nákvæmlega ekkert gruggugt við þetta.
Viðskipti fyrirtækis Katrínar, sem heitir Samleið ehf., við Samherja hafa staðið yfir í mörg ár, líka þegar hún var sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar. Samherji rekur einnig skreiðarþurrkun á Dalvík. Katrín á fyrirtækið á móti eiginmanni sínum.
Katrín segir að engir hagsmunaárekstrar séu í málinu. „Það er nákvæmlega ekkert gruggugt við þetta.“ Katrín segir aðspurð að hún sé ekki með upplýsingar um það hversu mikil viðskipti Samleiðar séu við Samherja. Sveitarstjórinn segir að hún hafi greint sveitarstjórn Þingeyjarsveitar frá eignarhaldi sínu á Samleið áður en hún var ráðin í sumar.
Fjallað er um þessi viðskipti fyrirtækis sveitarstjórans í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:
Spurningar eftir lokun þurrkunarinnar
Ástæðan fyrir því að þessi viðskiptatengsl fyrirtækis Katrínar koma fram núna er að deilur hafa staðið yfir um starfsemi skreiðarþurrkunar Samherja á Laugum. Hópur íbúa á Laugum hefur beitt sér fyrir því að fiskþurrkun verði hætt þar vegna umhverfisáhrifa starfseminnar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi starfsleyfi skreiðarþurrkunarinnar úr gildi nú í september.
Einn íbúi á Laugum, Haraldur Sverrisson, óskaði eftir upplýsingum um möguleg hagsmunatengsl Katrínar sveitarstjóra við Samherja og fékk þá upplýsingar um viðskiptasamband Samleiðar við Samherja. „Það voru sögusagnir hér í sveitarfélaginu um þessi tengsl. Mér fannst bara réttast að fá þetta á hreint svo við íbúar vissum hvernig í pottinn væri búið,“ segir hann.
Eftir að Haraldur óskaði eftir upplýsingum um tengsl Katrínar við Samherja skrifaði hún undir yfirlýsingu þess efnis að hún ætti hlut í Samleið á móti eiginmanni sínum. Þar segir hún meðal annars að hún hafi átt hlut í Samleið frá árinu 2014.
Knútur Emil Jónasson er oddviti sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar. Hann segir að Katrín hafi greint frá eignarhaldi sínu á fyrirtækinu Samleið þegar hún var ráðin í starfið í sumar. „En vissulega þurfum við að hafa það í huga við afgreiðslu á málum, þegar svona tengingar eru, á hvaða tímapunkti þarf að taka til skoðunar að hún víki frá. En hennar áhrif gagnvart ákvarðanatöku sveitarstjórnar eru ekki til að hafa áhyggjur af að við teljum,“ segir Knútur.
Samkvæmt ársreikningi Samleiðar fyrir árið 2025 námu tekjur Samleiðar 71 milljón króna í fyrra og var hagnaður fyrirtækisins 7 milljónir. Árið 2024 voru tekjurnar 52 milljónir og hagnaðurinn var 9 milljónir.
Samherji sagði við fréttastofu í síðasta mánuði, eftir að starfsleyfið var fellt úr gildi, að unnið væri að því að reyna að opna skreiðarþurrkunina aftur. Umhverfis- og orkustofnun auglýsti nú í október áform um bráðabirgðaheimild fyrir verksmiðjuna svo hún geti tekið aftur til starfa tímabundið, í eitt ár, á meðan unnið er úr umhverfismálum. Frestur til að skila inn athugasemdum við þá tillögu rann út 12. október.
Ráðnir sveitarstjórar og nýju sveitastjórnarlögin
Ein af þeim spurningum sem vakna um þetta mál er hvort það sé eðlilegt og æskilegt að aðrar reglur gildi um kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum og starfsfólk sem er ráðið, eins og sveitarstjóra.
Í dag er það þannig að sveitarfélög geta sjálf sett sér reglur og viðmið um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa og hvort birta eigi hana opinberlega eða ekki. Allur gangur er á því hvernig hagsmunaskráningu kjörinna sveitarstjórnarmanna og ráðinna starfsmanna er háttað í sveitarfélögum.
Ef frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga sem nú liggur fyrir á Alþingi verður að lögum þá verða sveitarfélög á Íslandi skyldug til að birta hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa og æðstu stjórnenda þeirra opinberlega. Þá eiga siðareglur sveitarstjórna líka að ná yfir ráðna bæjar- og sveitarstjóra, það er að segja þá sem ekki eru kjörnir fulltrúar.
Spillingararmur Evrópuráðsins, GRECO, er að skoða sveitarstjórnarstigið á Íslandi sérstaklega núna, meðal annars hagsmunaskráningu og siðareglur. Starfsfólk GRECO kom til Íslands til að kynna sér þessi mál í lok september og byrjun október líkt og fram kemur á heimasíðu Evrópuráðsins.
Ef þessi nýju sveitarstjórnarlög hefðu verið í gildi núna þá hefði hagsmunaskráning Katrínar Sigurjónsdóttur hjá Þingeyjarsveit orðið að liggja fyrir opinberlega eftir að hún var ráðin. Þá hefði eignarhald á þessu fyrirtæki ekki komið upp fyrir tilviljun af því að bæjarbúi á Laugum óskaði eftir og fékk upplýsingar um þetta eignarhald hennar hjá sveitarfélaginu.