Bíll keyrði á átta ára gamalt barn í Mosfellsbæ í fyrradag og ók svo í burtu. Ökumaðurinn gaf sig fram eftir að lögregla lýsti eftir honum. Fréttir sem þessar hafa borist okkur reglulega undanfarin misseri en engu að síður hefur ekki verið kallað eftir sérstökum aðgerðum til að tryggja öryggi barna í umferðinni. Sem áður sé ábyrgðinni velt á börnin frekar en ökumenn. Ellefu stjórnarmeðlimir Samtaka um bíllausan lífsstíl spyrja, í aðsendri grein hjá Vísi, hvers vegna svona fréttir veki ekki meiri reiði en þær gera.
Furða sig á andvaraleysinu - „Hvers vegna er ekki meiri reiði yfir þessu?“