„Já, við fundum fyrir þessu, náðum ekki upptöku af því en hún sá trén hreyfast,“ segir Jorge Mema í samtali við mbl.is, starfsmaður á The Greenhouse Café í Gróðurhúsinu í Hveragerði, sem varð vel var við jarðskjálftann þar sem hann var að störfum með samstarfskonu sinni Jaqueline Cerrvera.
„Þetta voru kannski tvær sekúndur,“ segir Mema enn fremur og kveðst hafa fundið þær upplýsingar á netinu að þrír skjálftar í röð hefðu orðið klukkan 13.45 og strax á eftir.
Hann hafi þegar látið samstarfsfólk sitt vita þar sem búast mætti við fleiri skjálftum.