Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

Íslenskur maður á fimmtugsaldri, búsettur í Hveragerði, hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnabrot og peningaþvætti í umfangsmiklu máli sem verður þingfest við Héraðsdóm Suðurlands á Selfossi þann 11. júní næstkomandi.
DV greindi fyrst frá málinu.
Samkvæmt ákæru héraðssaksóknara fann lögregla mikið magn fíkniefna við húsleit og leit í bifreið mannsins þann 6. ágúst árið 2024. Meðal þess sem lagt var hald á voru um tvö kíló af amfetamíni og 332 MDMA-töflur.
Maðurinn er sakaður um að hafa um nokkurt skeið hagnast á sölu og dreifingu fíkniefna og eftir atvikum öðrum refsiverðum brotum. Talið er að fjárhagslegur ávinningur hans hafi numið að minnsta kosti rúmum 32 milljónum króna.
Lögregla fann meðal annars 936 þúsund krónur á bankareikningi hans, rúma milljón í bifreið og tæplega 29 milljónir króna í peningaskáp á heimili hans, auk erlends gjaldeyris. Krafist er upptöku á fjármunum og fíkniefnum í málinu.