Nýjustu niðurstöður úr vöktun moskítóflugna í hesthúsi í Ölfusi eru jákvæðar, að sögn Náttúrufræðistofnunar.
„Við síðustu sýnatöku fundust þar engar moskítóflugur, í fyrsta sinn frá því þær fundust í hesthúsinu haustið 2025. Vöktun verður þó haldið áfram, bæði inni í hesthúsinu og í nágrenni þess, til að fylgjast með hvort flugurnar komi aftur fram,“ segir á vef stofnunarinnar.
Reynt að draga úr stofninum
Flugurnar fundust í hesthúsinu í lok október 2025 og fjölbreyttum aðferðum var beitt til að draga úr stofninum.
„Flugum hefur verið safnað handvirkt, með sérstakri moskítóryksugu og með gildrum af gerðinni BG-Sentinel, sem seyta frá sér koltvísýringi og lyktarefni sem laða flugurnar að. Jafnframt voru uppeldisstöðvar flugnanna meðhöndlaðar með sílikonefni sem myndar himnu á vatnsyfirborði og hindrar að lirfur og púpur nái í súrefni.“
Það þarf að fylgjast lengur með til að meta með vissu hvort aðgerðirnar hafi skilað varanlegum árangri.
Margar ábendingar en engin reyndist moskító
Á næstu mánuðum leggur Náttúrufræðistofnun áherslu á rannsóknir í Kjós. Þar fannst moskítófluga haustið 2025. „Þar verða gildrur notaðar til að fanga fullorðnar flugur auk þess að leitað verður að lirfum og púpum á mögulegum uppeldissvæðum.“
Stofnuninni hafa borist fjölmargar ábendingar frá almenningi um meintar moskítóflugur víða um land. Í öllum tilvikum voru þar á ferð aðrar tegundir flugna.
Stofnunin segir ábendingar frá almenningi mjög mikilvægar og hvetur fólk sem telur sig hafa séð moskító að tilkynna það.