Íranar eiga aðeins um fimmtung eftir af flugskeytum, mun minna en áður en Bandaríkin og Ísrael hófu árásir 28. febrúar. Þetta sagði Bandaríkjaforseti í viðtali í Meet The Press hjá NBC-sjónvarpsstöðinni í nótt. Ástæða þess að ekki hafi tekist að semja um stríðslok við Írana sé að þeir séu of sterkir og stoltir til þess.
Íranar „sterkir og stoltir“
„Þeir eru sterkir, þeir eru stoltir. Þetta eru hlutir sem þeir héldu að þeir þyrftu aldrei að gera. Þeir hafa ekkert val og það tekur smá tíma,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í viðtalinu þegar fréttamaðurinn innti hann eftir svörum um af hverju það tæki svo langan tíma að ná saman um stríðslok. Forsetinn hefur sagt Írana örvæntingarfulla að ná samkomulagi við Bandaríkjamenn.
Sprengjuárásir hafa gengið á báða bóga milli Írans og Bandaríkjanna síðustu daga þrátt fyrir að vopnahlé hafi verið í gildi síðan í byrjun apríl. Íranar skutu flugskeytum í átt að bandarískum herstöðvum í nokkrum Persaflóaríkjum og Bandaríkjaher svaraði með árásum á íranskar ratsjárstöðvar í nótt.
Utanríkisráðuneyti Írans sakaði Bandaríkjamenn um gróft brot á vopnahléinu og fordæmdi hegðun stjórnvalda sem það sagði fjandsamlega og ögrandi.
Bandaríkjamenn hafa þrýst á Írana að semja um stríðslok en viðræðurnar hafa ekki borið árangur.
Trump sagði Bandaríkin hafa gjörsamlega eyðilagt her Írana. Bandaríkjaher hefði gert nánast allar drónaverksmiðjur þeirra óstarfhæfar.
„Flestir skotpallar hafa verið eyðilagðir og flest framleiðslusvæði eldflauga hafa verið eyðilögð. En þeir hafa enn hernaðarmátt. Þeir eiga einhver flugskeyti og dróna. Ég myndi segja að hlutfallið væri um 21 eða 22 prósent flugskeyta þeirra. Það eru mörg flugskeyti en mun færri en þegar við réðumst fyrst á þá.“