Brottvísunarstöð tekur til starfa 1. desember eftir að Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis í dag. Breytingatillögur um vistarverur barnafjölskyldna voru samþykktar.
Frumvarpið var umdeilt og var aðallega gagnrýnt fyrir að börn skyldu vistuð í lokuðu úrræði. Brottvísunarstöðinni er ætlað að hýsa útlendinga sem vísa á úr landi. Henni verður fundið húsnæði á Suðurnesjum.
Þær breytingar voru gerðar á frumvarpinu milli fyrstu og annarrar umræðu að barnafjölskyldur skyldu vistaðar fjarri einstaklingum og þeim yrði tryggð afmörkuð svefnaðstaða þótt önnur aðstaða, svo sem eldunar- og salernisaðstaða, yrði sameiginleg.
Gengið var lengra milli annarrar og þriðju umræðu og kveður frumvarpið á um að barnafjölskyldur fái afmarkað rými með að lágmarki svefnaðstöðu, tómstundasvæði innan- og utandyra, auk salernis- og eldunaraðstöðu.
Þá verður dómsmálaráðherra gert að leggja skýrslu fyrir Alþingi innan tólf mánaða um hvernig lögunum hefur verið framfylgt. Í skýrslunni á að koma fram hversu margir voru vistaðir í brottvísunarstöðunni og hversu lengi, gera grein fyrir stöðu barnafjölskyldna og tilgreina hversu oft og í hvaða tilfellum valdbeitingu var beitt.
Frumvarpið var samþykkt með 42 atkvæðum þar sem þingmenn stjórnarflokkanna og Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði með frumvarpinu. Þingmenn Miðflokks og Framsóknarflokks sátu hjá.