Frey Alexanderssyni hefur verið sagt upp störfum sem þjálfara norska úrvalsdeildarfélagsins Brann.
Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni en Freyr, sem er 43 ára gamall, tók við þjálfun liðsins í janúar árið 2025.
Brann hefur byrjaði tímabilið afar illa og er sem stendur í 11. sæti úrvalsdeildarinnar með 13 stig eftir tólf umferðir.
Þrjú töp í röð
Liðið er aðeins tveimur stigum frá umspili um fall úr deildinni og hefur tapað þremur leikjum í röð en liðið var í toppbaráttu á síðustu leiktíð undir stjórn Freys.
Brann hafnaði í fjórða sæti deildarinnar á síðustu leiktíð og þá hafnaði liðið í öðru sæti bikarkeppninnar undir hans stjórn.
Þá komst liðið alla leið í umspil um sæti í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar þar sem liðið tapaði fyrir ítalska liðinu Bologna.