Franska strandgæslan bjargaði 119 flóttamönnum á Ermarsundi á laugardaginn. Fólkið var að reyna að komast yfir sundið til Bretlands á litlum bátum. Einn flóttamaður var meðvitundarlaus og var fluttur með þyrlu á spítala í Boulogne á norðurströnd Frakklands.
Frakkar og Bretar skrifuðu undir þriggja ára samning á fimmtudaginn um að stöðva flóttamenn sem reyna að sigla yfir Ermarsund. Bresk stjórnvöld ætla að auka greiðslur til franskra stjórnvalda og taka þátt í að fjármagna aðgerðirnar.
Á síðasta ári reyndu að minnsta kosti 29 flóttamenn að sigla yfir Ermarsund. Á þessu ári hafa sex látist við að reyna að fara yfir sundið.