Tíu tonn af textíl berast til sorpvinnslu á hverjum degi. Nýsköpunarfyrirtækið Flöff umbreytir textílnum í nýjan efnivið og setur á markað hljóðdempandi veggpanela.
Árið 2024 kynntust fjórar konur á námskeiði hjá KLAK - Icelandic Startups. Þær höfðu sömu sýn; vildu búa til hringrás fyrir endurvinnslu textíls hérlendis en textílúrgangur er eitt stærsta úrgangsvandamál heimsins. Í kjölfarið stofnuðu þær fyrirtækið Flöff sem fær afgangstextíl frá íslenskum fyrirtækjum til framleiðslu á veggpanelum.
„Við erum með stóra drauma,“ segir Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir, ein stofnanda fyrirtækisins. Hún segist vonast til þess að Flöff verði fyrsta textílendurvinnsla Íslands.